Vefur í vinnslu
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Það er einstakt að búa á Akureyri. Hér er víðtæk og öflug þjónusta, stuttar vegalengdir og nægt framboð af húsnæði.
Akureyri státar af fjölbreyttu atvinnulífi og ótal möguleikum til afþreyingar. Bærinn er fjölskylduvænn, með blómstrandi menningar- og íþróttalíf og hér eru aðstæður til að lifa umhverfisvænu lífi með þeim bestu sem gerast.
Velkomin til Akureyrar!
Þjónustuver sveitarfélagsins í Ráðhúsi, Geislagötu 9, er opið virka daga kl. 9-15. Símanúmer Akureyrarbæjar er 460 1000.
Flutning skal tilkynna til Þjóðskrár Íslands innan sjö daga frá flutningi. Þetta er hægt að gera rafrænt.
Ef flutt er til landsins þarf að mæta í eigin persónu í afgreiðslu Þjóðskrár í Reykjavík eða hjá næsta lögreglustjóra. Á Akureyri er það Lögreglustöðin við Þórunnarstræti 138.
Munið að tilkynna breytt heimilisfang til Íslandspóst, þar sem Pósturinn fær ekki sjálfvirkar tilkynningar um flutning frá Þjóðskrá.
Akureyrarbær leggur áherslu á rafræna stjórnsýslu og býður upp á aðgengilega þjónustugátt hér á heimasíðunni. Í þjónustugátt er hægt að sækja um margvíslega þjónustu og leyfi, skoða reikninga og fylgjast með afgreiðslu eigin mála. Þar má einnig finna yfirlit yfir nýtingu frístundastyrks barna á aldrinum 6–17 ára.
Viltu byggja?
Á kortavef Akureyrarbæjar er myndrænt yfirlit yfir lausar byggingarlóðir. Umsóknir um lóðir fara fram í gegnum þjónustugáttina. Frekari upplýsingar um lóðaúthlutanir, gjaldskrá og fleira má finna hér.
Leigjendur
Leigumarkaðurinn á Akureyri er virkur. Á Facebook-síðunni Leiguíbúðir á Norðurlandi má reglulega finna auglýsingar um íbúðir til leigu á almennum markaði. Akureyrarbær veitir einnig leiguhúsnæði til einstaklinga og fjölskyldna sem ekki hafa aðra möguleika á að tryggja sér húsnæði. Að auki býður bærinn sérstakan húsnæðisstuðning. Upplýsingar um húsnæðisúrræði og stuðning sveitarfélagsins má nálgast hér.
Kaupendur
Á Akureyri eru starfandi u.þ.b. tíu fasteignasölur sem bjóða upp á fjölbreytt úrval húsnæðis til sölu. Hvort sem þú leitar að nýju eða gömlu, sérbýli eða fjölbýli, ætti að vera auðvelt að finna eign sem hentar þínum þörfum. Þó fasteignaverð hafi hækkað á Akureyri á undanförnum árum, líkt og annars staðar á landinu, er það enn mun lægra í samanburði við höfuðborgarsvæðið. Þetta gerir Akureyri að aðlaðandi kosti fyrir þá sem vilja kaupa fasteign.
Norðurorka annast vinnslu og dreifingu á heitu vatni, neysluvatni og raforku til heimila og fyrirtækja, auk uppbyggingar og reksturs fráveitu. Á vefsíðu Norðurorku má nálgast persónulegar upplýsingar og þjónustutengd gögn á Mínum síðum. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Norðurorku í síma 460 1300 eða með tölvupósti á no@no.is.
Akureyrarbær leggur áherslu á umhverfismál. Vegalengdir eru stuttar og auðvelt er að ganga eða hjóla milli staða, auk þess sem frítt er í strætó.
Akureyringar flokka úrgang og leggja áherslu á að urða sem minnst. Hér eru upplýsingar um sorphirðu, gámasvæði, klippikort, grenndarstöðvar og fleira.
Í íbúa-appinu er að finna rafrænt gámakort. Hér eru upplýsingar um appið, sem hægt er að sækja bæði í gegnum Appstore og Google Play.
Akureyrarbær var fyrsta Barnvæna sveitarfélagið á Íslandi samkvæmt skilgreiningu UNICEF. Verkefnið felst í því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í stjórnsýslu og alla starfsemi Akureyrarbæjar.
Hér má nálgast upplýsingar um barnavernd, þjónustu við fötluð börn, forvarnir, sumarnámskeið, frístundastyrki, útivistarreglur og æskulýðs- og tómstundastarf.
Dagforeldrar
Dagforeldrar starfa í öllum hverfum Akureyrar. Þau sem leita að dagforeldri fyrir börn sín er bent á að hafa samband beint við þá og skrá sig á biðlista. Einnig er hægt að hafa samband við fræðslu- og lýðheilsusvið til að fá aðstoð og ráðleggingar. Hér eru upplýsingar og listar yfir dagforeldra.
Leikskólar
Akureyrarbær rekur níu leikskóla og styrkir einn sjálfstætt starfandi leikskóla, Hólmasól, sem starfræktur er af Hjallastefnunni. Leikskólaval er í gildi á Akureyri, sem þýðir að leikskólar eru ekki hverfaskiptir heldur byggja á mismunandi stefnum og aðferðum, og foreldrar geta valið þann sem þeim líst best á. Hér má finna allar upplýsingar um leikskóla.
Grunnskólar
Grunnskólar Akureyrarbæjar eru tíu og boðið er upp á frístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Sótt er um leik- og grunnskóla í þjónustugáttinni. Hér eru upplýsingar um skólafæði fyrir leik- og grunnskóla.
Framhaldsskólar
Menntaskólinn á Akureyri er bóknámsskóli með ríka hefð og bekkjakerfi. Verkmenntaskólinn á Akureyri er verknámsskóli í fremstu röð sem býður einnig upp á bóknám og leggur sérstaka áherslu á einstaklingsmiðaða nálgun og námsleiðir við hæfi.
Háskólinn
Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Norðurlandi og sá stærsti utan höfuðborgarsvæðisins. Skólinn er í stöðugri sókn og býður upp á fjölbreytt námsframboð á öllum stigum háskólanáms. Mikil áhersla er lögð á sveigjanlegt nám. Meðal námsgreina eru fjölmiðlafræði, hjúkrunarfræði, lögreglufræði, sálfræði, sjávarútvegsfræði og tölvunarfræði.
Tónak
Tónlistarskólinn á Akureyri er einn elsti og rótgrónasti tónlistarskóli landsins.
Það er ókeypis að ferðast með strætó á Akureyri. Þá eru vegalengdir almennt stuttar og er í flestum tilvikum auðvelt að ganga eða hjóla milli staða. Hér er kort yfir göngu- og hjólaleiðir.
SVA rekur einnig ferliþjónustu fyrir fatlað fólk og aldraða einstaklinga sem ekki geta nýtt sér hefðbundna þjónustu strætó.
Á Akureyri eru gjaldskyld bílastæði í miðbænum og nágrenni hans. Hér eru nánari upplýsingar um gjaldskyld bílastæði og greiðsluleiðir.
Akureyrarflugvöllur er notaður í innanlands- og millilandaflugi, auk þess sem miðstöð sjúkraflugs er á Akureyri.
Stoppistöð Strætó á landsbyggðinni er við Menningarhúsið Hof.
Ferjurnar Sævar og Sæfari sigla í Hrísey og Grímsey. Sævar siglir milli Hríseyjar og Árskógssands á tveggja klukkustunda fresti. Sæfari siglir milli Grímseyjar og Dalvíkur nokkrum sinnum í viku. Flugfélagið Norlandair starfrækir auk þess flug milli Akureyrar og Grímseyjar.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands starfrækir heilsugæslu í Sunnuhlíð á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir bæði almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, með sérstaka áherslu á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Það er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa á landinu og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Á sama tíma er sjúkrahúsið kennslusjúkrahús og þekkingarmiðstöð.
Læknastofur Akureyrar er einkarekið fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu og veitir ýmiss konar sérfræðiþjónustu.
Það er gott að eldast á Akureyri, þar sem þjónusta við aldraða er fjölþætt og miðar að því að styðja þá til að búa sem lengst heima við góðar aðstæður. Boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf, heimaþjónustu, dagþjálfun, tímabundna dvöl og ýmis önnur úrræði sem tryggja vellíðan og stuðning.
Heilsuvernd rekur öldrunarheimili sem eru á tveimur stöðum á Akureyri, hjúkrunar- og dvalarheimilið Hlíð og hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð.
Hér má nálgast upplýsingar um þjónustu og aðstoð í boði fyrir eldri borgara.
Málefni fatlaðs fólks heyra undir velferðarsvið Akureyrarbæjar, sem leggur áherslu á að mæta þörfum þeirra eins vel og unnt er. Þjónustan felur meðal annars í sér sérhæft húsnæði, félagslega liðveislu, akstursþjónustu, heimaþjónustu, ráðgjöf og styrki. Auk þess starfrækir sveitarfélagið vinnustaði fyrir fatlað fólk.
Nánari upplýsingar um þjónustu við fatlað fólk má finna hér.
Fyrsta flokks aðstæður eru til íþróttaiðkunar á Akureyri, hvort sem það eru keppnisíþróttir, skipulagðar æfingar eða hreyfing á eigin forsendum.
Akureyrarbær niðurgreiðir þátttökugjöld barna og unglinga vegna íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfs á Akureyri með frístundastyrk. Hægt er að sjá stöðu frístundastyrks í þjónustugátt Akureyrarbæjar.
Boðið er upp á fjölbreytt og innihaldsríkt æskulýðs- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.
Akureyri er sannkallaður menningarbær þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Menningarhúsið Hof, sem er heimahöfn Menningarfélags Akureyrar, býður upp á fjölbreytta viðburði og mikla möguleika. Bærinn státar af eina atvinnuleikhúsi landsins utan höfuðborgarsvæðisins, Leikfélagi Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, fjölmörgum áhugaverðum söfnum og einum vinsælasta tónleikastað landsins.
Hér má finna yfirlit yfir helstu menningarviðburði og áhugaverða staði bæjarins.
Hvort sem um er að ræða heimsókn á áhugaverða staði eða söfn, notalega stund í leikhúsi eða sundferð, útivist á göngu, hlaupum, hjóli eða skíðum, veitingar á fjölbreyttum veitingastöðum eða upplifun af einhverju allt öðru, býður Akureyri óteljandi möguleika. Á vefsíðunni visitakureyri.is er hægt að fylgjast með því sem er í gangi í bænum.