Vefur í vinnslu
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Verkefni bifreiðastæðasjóðs Akureyrarbæjar er að eiga og reka gjaldskyld og ógjaldskyld bifreiðastæði fyrir almenning í miðbænum og víðar.
(Smellið hér til að sjá myndina í fullri stærð)
Á miðbæjarsvæðinu eru gjaldskyld svæði með tímatakmörkunum. Hægt er að nota smáforrit (app) til að greiða fyrir lagningu bifreiða eða stöðumæla sem er að finna á þremur stöðum í miðbænum. Nánari upplýsingar í felligluggum að neðan.
Tvö gjaldsvæði eru í og við miðbæ Akureyrar, P1 og P2. Gjald fyrir hverja klst. er 218 kr. á svæði P1 og 109 kr. á svæði P2. Gjaldskyldutími er sá sami á báðum gjaldsvæðum, frá kl. 10-16 virka daga.
(Smellið hér til að sjá myndina í fullri stærð)
Tímabundin gjaldsvæði. Innan gjaldsvæða P1 og P2 er að finna afmörkuð svæði, samsíða götum, þar sem leyfilegur hámarkstími er 2 klst. Þessi tímabundnu gjaldsvæði eru merkt með skiltum þar sem hámarkstími kemur fram. Á meðfylgjandi uppdrætti eru þau afmörkuð með svörtum punktalínum.
Mælt er með að notaðar séu rafrænar greiðsluleiðir í snjallsíma (smáforrit eða app) til að greiða fyrir afnot af gjaldskyldum bifreiðastæðum. Eftirfarandi greiðsluöpp bjóða upp á slíka þjónustu á Akureyri. Viðskiptavinir bifreiðastæðasjóðs eru hvattir til að kynna sér vel notkunarskilmála á vefsíðum greiðslulausnanna.
Einnig má nota greiðsluhnapp efst á þessari síðu til að greiða fyrir stæði.
Appið veitir aðgang að fjölbreyttri þjónustu bæjarins á einfaldan og aðgengilegan hátt. Meðal þess sem appið býður upp á eru gámakort, sérstök ábendingargátt og tilkynningar frá sveitarfélaginu. Nú er hægt að greiða fyrir bílastæðasjóð, stöðvunarbrotagjald og biðja um endurupptöku í appinu. Engin þjónustugjöld eru tekin þegar appið er notað til að greiða fyrir bílastæði.
Hægt að sækja Íbúaappið í gegnum Appstore og Google Play.
Þú getur notað appið á öllum gjaldskyldum svæðum á Akureyri með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt. Þú velur tímann sem þú reiknar með að vera í stæði en hægt er að stöðva skráningu fyrr en áætlað var eða framlengja skráningu í gegnum appið.
Sjá meira EasyPark https://easypark.is/is.
Þjónustugjöld skv. gjaldskrá Easypark
Þú getur notað appið á öllum gjaldskyldum svæðum á Akureyri með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
Sjá meira um Parka á www.parka.is
Þjónustugjöld skv. verðskrá Parka
Þú getur notað appið á öllum gjaldskyldum svæðum á Akureyri með því að skrá bíl í stæði og velja rétt gjaldsvæði þegar bílnum er lagt og skrá úr stæði þegar ekið er burt.
Sjá meira um Verna á www.verna.is
Engin þjónustugjöld
Bæði Easypark og Parka bjóða upp á þjónustu við fyrirtæki sem vilja greiða bílastæðagjöld fyrir starfsfólk sem þarf að leggja tímabundið í miðbænum á gjaldskyldutíma. Fyrirtækjum er bent á að kynna sér þau mál á vefsíðum þessara þjónustuaðila:
https://www.easypark.com/is-is/fyrirtaeki
https://fyrirtaeki.parka.is/fyrirtaekjathjonusta/
Fyrirtæki geta einnig sent nánari fyrirspurnir beint á Parka eða Easypark gegnum þessa vefi.
Fyrirtækjum sem staðsett eru í miðbænum er bent á kaflann um fastleigukort hér neðar á síðunni ef þau vilja greiða bílastæðagjöld fyrir starfsfólk sitt á vinnutíma.
Þrír stöðumælar eru staðsettir í miðbæ Akureyrar, tveir við Skipagötu og einn við Túngötu.
Hægt er að greiða fyrir gjaldsvæði P1 og P2, bæði ótímabundin og tímabundin gjaldsvæði í öllum þremur stöðumælunum. Sjá nánari leiðbeiningar hér.
Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða veitir handhafa þess heimild til að leggja í sérmerkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða og leggja án endurgjalds í gjaldskyld bílastæði. Mikilvægt er að stæðiskortið sé ávallt sýnilegt í framrúðu við eftirlit. Kortinu skal komið fyrir innan við framrúðu þannig að gildistími á framhlið þess sé vel sýnilegur að utan.
Sýslumenn gefa út stæðiskort fyrir hreyfihamlaða. Umsækjendur þurfa að fylla út umsókn og skila inn ásamt læknisvottorði og ljósmynd (passamynd). Sýslumaður leggur mat á umsókn um stæðiskort og gefur út stæðiskortið að uppfylltum skilyrðum reglugerðar um útgáfu stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða nr. 1130/2016. Eyðublöð er hægt að nálgast á vefnum island.is/p-merki-staediskort.
Vakin er athygli á því að kortin eru gefin út að hámarki til tíu ára í senn. Kortin eru gefin út á einstakling en ekki bílnúmer.
Græn stæði og rafhleðslustæði eru bifreiðastæði fyrir bifreiðar sem eingöngu ganga fyrir umhverfisvænum orkugjöfum, s.s. rafmagni, vetni eða metani. Þessum bifreiðum er einum heimilt að leggja í græn stæði sem merkt eru með sérstöku skilti. Séu græn stæði innan gjaldskylds svæðis eru þau gjaldskyld.
Séu græn stæði með rafhleðslu gildir það sama um þau og önnur græn stæði, þ.e. að ef þau eru á gjaldskyldu svæði þá eru þau gjaldskyld. Almennt má bifreið ekki standa í rafhleðslustæði í lengri tíma en það tekur að fullhlaða bílinn.
Stöðvunarbrotagjöld eru tvenns konar. Annars vegar aukastöðugjöld sem lögð eru á bifreiðar ef ekki hefur verið greitt fyrir afnot gjaldskylds bílastæðis eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Hins vegar eru stöðubrotsgjöld sem lögð eru á ökutæki vegna ólöglegra lagninga skv. nánari heimildum umferðarlaga.
Þetta gjald (sem í daglegu tali er kallað stöðumælasekt) er nú 3.090 krónur. Að frádregnum 33% staðgreiðsluafslætti (ef greitt er innan þriggja virkra daga frá álagningu) er upphæðin 2.071 króna. Sé gjaldið ógreitt 14 dögum eftir álagningu hækkar það um 50%, úr 3.090 krónum í 4.635 krónur.
Stöðubrotsgjald er lagt á bifreið þegar stöðvað eða lagt er undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, lagt við vinstri brún götu (á móti akstursstefnu) eða við aðrar nánar tilteknar aðstæður sbr. 109. grein umferðarlaga nr. 77/2019. Það er nú 20.000 krónur en að frádregnum 33% staðgreiðsluafslætti (ef greitt er innan þriggja virkra daga frá álagningu) er það 13.400 krónur. Sé gjald ógreitt 14 dögum eftir álagningu hækkar það um 50% í 30.000 krónur.
Krafa vegna aukastöðu eða stöðubrotsgjalds er stofnuð á kennitölu bíleiganda (en umráðamanns, sé hann skráður í ökutækjaskrá). Krafan birtist í netbanka/bankaappi innan nokkurra mínútna eftir álagningu gjaldsins.
Ef greiðandi gjalds er ekki eigandi eða umráðamaður þess ökutækis sem skráð er á álagningarseðil, þá er hægt að greiða seðilinn með greiðsluhnappi efst á þessari síðu eða í netbanka (ekki í bankaappi).
Til að greiða álagningarseðil í netbanka skal fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:
Undir Greiðsluseðill (ekki millifærslur) skal slá inn greiðsluupplýsingar, sem finna má neðarlega á seðlinum, í þar til gerða reiti (Kennitala – Númer – Banki HB – Gjalddagi) og skrá kennitölu eiganda/umráðamanns í reit fyrir kennitölu greiðanda. Kennitöluna má finna með því að opna formið “Beiðni um endurupptöku” ofarlega á þessari síðu.
Aðili máls getur óskað eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun álagningar. Beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðun skal bera fram innan 14 daga frá því að álagning var lögð á ökutæki og verður henni svarað innan 14 daga frá því að hún barst.
Heimilt er að óska eftir endurupptöku ákvörðunar um álagningu stöðvunarbrotagjalds innan 28 daga frá dagsetningu álagningar. Almennur afgreiðslutími er ein til tvær vikur. Hægt er að senda inn andmæli vegna stöðvunarbrotagjalds.
Fólk sem býr á miðbæjarsvæðinu getur keypt svokölluð íbúakort sem gerir því heimilt að leggja bifreiðum sínum á afmarkað svæði nærri lögheimili sínu eða leiguhúsnæði. Allar nánari upplýsingar að neðan.
Þinglýstir eigendur íbúða innan afmarkaðs reits (sjá uppdrátt af íbúakortasvæðum) geta fengið íbúakort hafi þeir skráð lögheimili í viðkomandi íbúð. Skilyrði er að ekki sé aðgangur að bifreiðastæði innan lóðar eða á auðveldan hátt ekki hægt að útbúa það. Leigjandi sem hefur lögheimili og námsmenn sem framvísa staðfestingu frá skóla og hafa búsetu í íbúð á svæðinu, geta fengið íbúakort með því að framvísa þinglýstum leigusamningi.
Kortið veitir íbúum heimild til að leggja bifreið sinni á nánar tilgreindum gjaldskyldum stæðum innan þess svæðis sem kortið gildir fyrir. Aðeins má skrá eitt kort á hverja íbúð og á það skal skráð eitt bílnúmer, kortanúmer og gildistími. Sjá nánar í samþykkt um bifreiðastæðasjóð (X. kafli).
Sótt er um íbúakort hjá bifreiðastæðasjóði Akureyrarbæjar, á sérstöku umsóknareyðublaði í þjónustugátt Akureyrarbæjar. Um er að ræða rafrænt kort, ekki þarf að setja merkingu á eða í ökutækið. Eftirlitskerfi stöðuvarða flettir bílnúmeri upp í rafrænni skrá.
Ef handhafi íbúakorts skiptir um bíl á gildistímanum eða vill breyta um bílnúmer á korti þarf hann að skrá nýtt bílnúmer rafrænt á íbúakortið. Slíka breytingu skal gera á umsóknareyðublaði í þjónustugátt.
Íbúakort gildir eitt ár í senn og endurnýjast sjálfkrafa hjá íbúðareigendum og leigjendum með langtíma leigusamning. Fyrir leigjendur gildir kortið út leigutímann, ef leigutími er styttri en eitt ár. Handhafa íbúakorts ber að tilkynna bifreiðastæðasjóði ef skilyrði fyrir útgáfu íbúakortsins eru ekki lengur uppfyllt vegna breyttra aðstæðna korthafa, svo sem vegna flutnings á lögheimili, sölu ökutækis eða af öðrum sambærilegum ástæðum. Slík tilkynning skal berast á uppsagnareyðublaði í þjónustugátt. Uppsögn tekur gildi næsta virka dag eftir að henni hefur verið skilað inn í þjónustugátt. Gjald vegna íbúakorts er ekki endurgreitt í heild eða að hluta þó því sé sagt upp.
Gjald fyrir útgáfu rafræns íbúakorts er nú 6.540 krónur á ári. Gjaldið er hið sama þótt gildistími íbúakorts sé styttri en eitt ár.
Fastleigustæði eru gjaldskyld bifreiðastæði, þar sem heimilt er að leggja bifreiðum á skilgreindu fastleigusvæði ótímabundið. Fastleigustæði eru ekki sérmerkt þeim sem er með fastleigukort innan fastleigusvæðis.
Á meðfylgjandi uppdrætti má sjá staðsetningu fastleigusvæða.
Sótt er um fastleigukort hjá bifreiðastæðasjóði Akureyrarbæjar á sérstöku umsóknareyðublaði í þjónustugátt Akureyrarbæjar. Um er að ræða rafrænt kort, ekki þarf að setja merkingu á eða í ökutækið. Eftirlitskerfi stöðuvarða flettir bílnúmeri upp í rafrænni skrá.
Uppsögn fastleigukorts skal vera skrifleg og fer fram á uppsagnareyðublaði í þjónustugátt. Uppsögn tekur gildi um næstu mánaðamót eftir að henni hefur verið skilað inn í þjónustugátt.
Fastleigukort tekur gildi næsta virka dag eftir að krafa vegna þess hefur verið greidd í heimabanka. Kortið endurnýjast mánaðarlega þar til því hefur verið sagt upp af handhafa kortsins. Sé mánaðarlegt gjald ekki greitt á eindaga fellur kortið úr gildi. Heimilt er að úthluta öðrum aðila kortanúmeri sé krafa enn ógreidd 10 dögum eftir eindaga.
Fyrir fastleigustæði er greitt leigugjald sem bæjarráð ákveður í gjaldskrá bifreiðastæðasjóðs. Tvö fastleigusvæði eru í boði. Á svæði F1 við Skipagötu og Hofsbót er gjaldið nú 13.080 krónur á mánuði. Á svæði F2 við Túngötu er gjaldið nú 6.540 krónur á mánuði.