Beint í efni

Vefur í vinnslu

Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is

Frístundastyrkur

Meginmarkmið frístundastyrksins er að öll börn og unglingar geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. 

Akureyrarbær veitir börnum á aldrinum 6-17 ára frístundastyrk sem nota má til niðurgreiðslu þátttökugjalda hjá íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsfélögum á Akureyri.

Frístundastyrkurinn 2025 er fyrir börn fædd 2008 til og með 2019.

Styrkurinn er að upphæð kr. 55.000 og gildir frá 1. janúar 2025 - 31.desember 2025.

Úthlutunarreglur 2025

Foreldrar og forráðamenn geta séð stöðu styrksins á þjónustugátt Akureyrarbæjar. 

Sport – and leisure subsidy
Dopłaty do zajęć organizowanych w czasie wolnym
Pabalsts dalībai pulciņos un ārpusskolas nodarbībās bērniem 
 دعم أوقات الفراغ