Vefur í vinnslu
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Akureyrarbær tryggir framboð af leiguhúsnæði til handa einstaklingum og fjölskyldum sem ekki hafa kost á að afla sér húsnæðis með öðrum hætti. Um er að ræða almennt félagslegt leiguhúsnæði, sértækt húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk og áfangaheimili.
Almennt félagslegt leiguhúsnæði er ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt fær um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og/eða lágra launa.
Sértækt húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk er íbúðarhúsnæði sem er ætlað þeim sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum fötlunar og þurfa umfangsmikla aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili.
Sótt er um félagslegt húsnæði í þjónustugátt bæjarins - sjá neðar á síðunni. Velferðarsvið tekur síðan á móti umsóknum og afgreiðir þær. Einnig er hægt að fá almenna upplýsingagjöf og ráðgjöf um húsnæðismál hjá sviðinu. Fyrirspurnir er hægt að senda á velferdarsvid@akureyri.is. Neðst á þessari síðu er hægt að bóka viðtal hjá húsnæðisfulltrúa. Auk þess er hægt að hringja í síma 460 1000 á milli 9.00-15.00 á virkum dögum og panta símtal frá húsnæðisfulltrúa.
Fyrir leigjendur: Umsókn um viðhald á leiguíbúð er að finna á þjónustugátt Akureyrarbæjar undir Umsóknir > Félagslegt leiguhúsnæði og sérstakur húsnæðisstuðningur > Leiguíbúð viðhaldsbeiðni. Einnig er hægt að senda inn ábendingu í gegnum heimasíðu Akureyrarbæjar með því að nota hnappinn Fyrirspurnir og ábendingar sem finna má á forsíðunni.
Reglur um félagslegt leiguhúsnæði Akureyrarbæjar 2023
Gjaldskrá félagslegs húsnæðis frá 1. mars 2024
Félagslegt leiguhúsnæði - umsókn á þjónustugátt - sækja í pdf formi
Uppsögn félagslegs leiguhúsnæðis á þjónustugátt - sækja í pdf formi
Sérstakur húsnæðisstuðningur er ætlaður þeim einstaklingum og fjölskyldum sem ekki eru með öðrum hætti fær um að sjá sér fyrir húsnæði eða eru með íþyngjandi húsnæðiskostnað sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrði og félagslegra aðstæðna. Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára barna er ætlaður fyrir foreldra eða forsjáraðila sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum hér á landi vegna náms barna fjarri lögheimili.
Velferðarsvið annast móttöku og afgreiðslu umsókna um sérstakan húsnæðisstuðning. Fyrirspurnir er hægt að senda á velferdarsvid@akureyri.is. Auk þess er hægt að hringja í síma 460 1400 á milli 9.00-15.00 á virkum dögum og panta símtal frá húsnæðisfulltrúa.
Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning á þjónustugátt - sækja í pdf formi
Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning vegna 15 - 17 ára barna á þjónustugátt - sækja í pdf formi