Vefur í vinnslu
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Það er frábært að vera barn á Akureyri. Hér eru góðir skólar, skemmtilegar tómstundir og stutt í náttúruna og ævintýri.
Á Akureyri eru möguleikar ungmenna til að þroskast í leik og starfi nær óþrjótandi. Skólakerfið byggir á traustum grunni, hér er stutt á milli staða, og nálægðin við náttúruna er mikil. Hér að neðan má finna hlekki með upplýsingum um þjónustu við börn og ungmenna á Akureyri.
Meginmarkmið frístundastyrksins er að öll börn og unglingar geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
Leikjaskóli, golf, sumarbúðir eða félagsmiðstöðvafjör. Hvað viltu gera skemmtilegt í sumar?
Samkvæmt barnaverndarlögum mega börn ekki vera úti eftir ákveðinn tíma nema í fylgd fullorðinna.
Forvarnarstefna Akureyrarbæjar miðar að því að standa vörð um hagsmuni barna og ungmenna og tryggja uppeldisskilyrði þeirra.
Ráðið gefur ungmennum tækifæri til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt, meðal annars með því að eiga samskipti við kjörna fulltrúa sveitarfélagsins.
Viltu læra, æfa, miðla og upplifa? Það ættu allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi.
Barna- og fjölskylduþjónusta þjónustar fjölskyldur með langveik og fötluð börn með fjölþættar þjónustuþarfir og börn í félagslegum vanda.
Að ala upp barn er eitt mikilvægasta og krefjandi verkefni sem foreldrar takast á við.
Ef þú hefur áhyggjur af því að barn búi við óviðunandi aðstæður sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu, líðan eða þroska þess, ættir þú að senda tilkynningu til Barnaverndar.
Heilsugæslan á Akureyri býður upp á ýmsa þjónustu við börn, meðal annars ung- og smábarnavernd, geðheilsuteymi fyrir börn og unglinga og sinnir heilsuvernd grunnskólabarna ásamt almennri heilbrigðisþjónustu.