Beint í efni

Vefur í vinnslu

Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is

Vinnuskólinn

Áhugaverð vinna í þroskandi og skapandi umhverfi

Lystigarður í blóma
  • Vinnuskóli 14 og 15 ára unglinga

    Vinnutímabil, vinnutími, launakjör, launaseðlar, veikindi, skattur og útborgun launa.

  • Vinnuskóli 16 og 17 ára unglinga

    Vinnutímabil, vinnutími, launakjör, launaseðlar, veikindi, skattur og útborgun launa.

  • Spurt og svarað

    Hvernig virkar Vinnuskólinn? Hvað má og hvað má ekki? Hvað fæ ég mikla vinnu? Hér eru svör við helstu spurningum.

Vinnuskólinn

Starfsstöðvar Vinnuskólans

Starfsstöðvar Vinnuskólans eru 9, í Brekkuskóla, Giljaskóla, Glerárskóla, Lundarskóla, Naustaskóla, Oddeyrarskóla, Síðuskóla, Hrísey og Grímsey. Einnig vinna unglingar hjá stofnunum og félögum í bænum. Unglingum með gróðurofnæmi eða félagsleg vandamál er í mörgum tilfellum boðið upp á að vinna á leikskólum bæjarins eða önnur úrræði fundin.

    Hendur með mold

    Verkstjórar

    Verkstjórar Vinnuskólans eru tveir, annar sér um 14 og 15 ára unglinga en hinn sér um 16 og 17 ára. Einnig starfar verkstjóri sumarvinnu með stuðningi hjá Vinnuskólanum.

      Fætur og sláttuorf

      Reglur Vinnuskólans

      Mikilvægt er að allir fari eftir gildandi reglum Vinnuskólans. Brot á reglum getur leitt til brottvísunar úr Vinnuskólanum.