Störf í boði
Viltu slást í hópinn?
Samkvæmt mannauðsstefnu Akureyrarbæjar ber að auglýsa öll laus störf nema um sé að ræða tímabundin afleysingarstörf til skemmri tíma en sex mánaða.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum.
Þegar umsókn hefur verið send fær umsækjandi tilkynningu á skjáinn ásamt tölvupósti um að umsókn hafi borist. Öllum umsóknum um auglýst starf er svarað þegar ráðningu er lokið.
Einnig er hægt að leggja inn umsókn um tímabundið afleysingarstarf. Þær umsóknir eru ekki teknar með við úrvinnslu á auglýstum störfum og einungis skoðaðar ef um tímabundin afleysingarstörf er að ræða. Þessar umsóknir gilda í þrjá mánuði og er ekki svarað sérstaklega nema ef um ráðningu er að ræða. Þessar umsóknir gilda ekki um sumarstörf eða atvinnuátak.
Umsóknir í Vinnuskólann fyrir 14-17 ára ungmenni
Allir sem sækja um starf í vinnuskólanum fá boð um starf.
Starfstímabil vinnuskólans er frá 10. júní til og með 15. ágúst.
Allar nánari upplýsingar um Vinnuskólann má nálgast hér
Umsóknarfrestur í Vinnuskólann er til og með 1. júní 2025