Vefur í vinnslu
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Samkvæmt barnaverndarlögum er hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við ofbeldi eða vanrækslu skylt að tilkynna það til barnaverndarnefndar.
Ef þú telur að barn búi við aðstæður sem eru á einhvern hátt óæskilegar eða hafa neikvæð áhrif á heilsu þess, líðan eða þroska skalt þú senda inn tilkynningu til Barnaverndar. Ef þú telur að barn sé í hættu og málið þolir ekki bið skalt þú hringja strax í 112. Einstaklingar yngri en 18 ára teljast börn. Lögin eiga einnig við um ófædd börn t.d. ef þeim stafar hætta af vímuefnaneyslu móður eða af ofbeldi sem móðir verður fyrir.
Tilkynnandi skal í öllum tilfellum segja til nafns og gera grein fyrir netfangi og símanúmeri ef þörf er á frekari upplýsingum. Óski tilkynnandi nafnleyndar hafa starfsmenn barnaverndar aðeins upplýsingar um tilkynnanda en ekki sá sem tilkynnt er um.
Hér berast barnaverndartilkynningar frá fagaðilum sem starfa með börnum.