Félagsmálaráð - 1128
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1128
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Jóhann Ásmundsson
- Sif Sigurðardóttir
- Margrét Guðjónsdóttirfundarritari
Starfsáætlun félagsmálaráðs 2010-2014
Málsnúmer 2011010043Félagsmálaráð tók til umræðu starfsáætlun og stefnumótun ráðsins fyrir árin 2011 - 2014. Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Karolína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar, Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Anna Marit Nielsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynntu stöðu mála og fyrirliggjandi verkefni.

Unnið verður áfram að starfsáætlun í samvinnu við starfsfólk og drög að starfsáætlun tekin fyrir í samhengi við fjárhagsáætlunargerð.

Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - kvörtun vegna synjunar um að komast á biðlista
Málsnúmer 2011080028Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi báru upp erindi um endurupptöku máls vegna fyrri synjana um að fara inn á biðlista fyrir leiguíbúðir Akureyrarbæjar. Lagt fram minnisblað Jóns Heiðars Daðasonar, húsnæðisfulltrúa dags.18.08 2011.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Fjölsmiðjan á Akureyri - ósk um rekstrarstyrk 2011
Málsnúmer 2011070007Erindi dags. 4. júlí 2011 frá forstöðumanni Fjölsmiðjunnar á Akureyri þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2011. Erlingur Kristjánsson mætir á fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð þakkar Erlingi fyrir góða kynningu á mikilvægu starfi Fjölsmiðjunnar. Ráðið samþykkir að verða við umbeðnum rekstrarstyrk að upphæð kr. 4.000.000.- fyrir árið 2011. Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra Fjölskyldudeild var falið að vinna að drögum að rekstrarsamningi fyrir árið 2012.

Fjölskyldudeild - ársskýrsla 2010
Málsnúmer 2011080066Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Fjölskyldudeildar lagði fram til kynningar ársskýrsla Fjölskyldudeildar fyrir árið 2010.

Félagsmálaráð þakkar áhugaverða og vel unna skýrslu.

Skipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi. Skýrsla unnin af stjórnendum og fagfólki á heilbrigðisstofnunum á Norðurlandi.
Málsnúmer 2011080053Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK kynnti skýrslu um skipulag heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi sem unnin var af stjórnendum og fagfólki á heilbrigðsstofnunum á Norðurlandi vorið 2011.

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.