Bæjarráð - 3469
- Kl. 08:30 - 12:20
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3469
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Íbúalýðræði og gagnsæ stjórnsýsla
Málsnúmer 2015020002Andrea Sigrún Hjálmsdóttir fulltrúi í vinnuhópi um íbúalýðræði og gagnsæja stjórnsýslu hjá Akureyrarbæ mætti á fund bæjarráðs og fór yfir stöðu verkefnisins.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráð undir þessum lið.Bæjarráð þakkar Andreu fyrir yfirferðina.
Akureyrarbær - stjórnsýsluúttekt
Málsnúmer 2015080042Farið yfir fyrirkomulag stjórnsýsluúttektar hjá Akureyrarbæ.
Arnar Jónsson ráðgjafi hjá Capacent mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat einnig fund bæjarráð undir þessum lið.Bæjarráð þakkar Arnari komuna á fundinn.
Jafnréttisstefna 2015-2019
Málsnúmer 20150602172. liður í fundargerð samfélags- og mannréttindaráðs dagsett 11. júní 2015:
Framkvæmdastjóri lagði fram ný drög að Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar 2015-2019.
Samfélags- og mannréttindaráð vísar drögum að jafnréttisstefnu til umsagnar hjá deildum og nefndum Akureyrarbæjar.
Í samræmi við nýtt ákvæði í stefnunni, tilnefnir ráðið Vilberg Helgason sem þróunarleiðtoga innan samfélags- og mannréttindaráðs. Hlutverk þróunarleiðtoga er að vera málsvarar kynjasamþættingar.
Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráð undir þessum lið.Bæjarráð vísar drögum að jafnréttisstefnu til samfélags- og mannréttindaráðs með þeim ábendingum sem ræddar voru á fundinum.
Aðalskipulagsbreyting - Hörgársveit - tilfærsla Lónsins við sláturhús B. Jensen
Málsnúmer 20130500081. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 12. ágúst 2015:
Erindi dagsett 12. maí 2015 frá Snorra Finnlaugssyni sveitarstjóra Hörgársveitar sem óskar eftir breytingu á sveitarfélagamörkum með tilfærslu Lónslækjar til suðurs á móts við sláturhús B. Jensen í Hörgársveit, þannig að hægt verði að koma fyrir viðbyggingu við þá starfsemi sem þar er.
Skipulagsnefnd fól skipulagsstjóra að láta vinna aðalskipulagsbreytingu á sveitarfélagamörkunum vegna færslu Lónslækjar í samræmi við umræður á fundi skipulagsnefndar 13. maí 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra lagði fram tillögu að aðalskipulagsbreytingu dagsetta 15. júli 2015 unna af Árna Ólafssyni frá Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf.
Breyting þessi felur ekki í sér stefnu um leyfisveitingar til framkvæmda, sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og er hún því ekki háð lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Breytingin er óveruleg og hefur hvorki áhrif á ósnortna náttúru, jarðmyndanir og vistkerfi, sem njóta sérstakrar verndar, verndarsvæði né skráðar fornminjar. Breytingin hefur ekki í för með sér neikvæð áhrif á nágranna eða landnotkun og nýtingu aðliggjandi svæða.
Skipulagsnefnd leggur því til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar 2. júní 2015.Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar.
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga frá L-lista um breytingu á skipan aðalmanns, varaformanns og varamanns í velferðarráði svohljóðandi:
Róbert Freyr Jónsson tekur sæti aðalmanns og varaformanns í velferðarráði í stað Jóhanns Gunnars Sigmarssonar og Inda Björk Gunnarsdóttir tekur sæti varamanns í velferðarráði í stað Rósu Matthíasdóttur.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar 2. júní 2015.Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu.