Skipulagsráð - 346
- Kl. 08:00 - 11:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 346
Nefndarmenn
- Þórhallur Jónssonformaður
- Arnfríður Kjartansdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Orri Kristjánsson
- Helgi Sveinbjörn Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pétur Ingi Haraldssonsviðsstjóri skipulagssviðs
- Margrét Mazmanian Róbertsdóttirverkefnastjóri skipulagsmála
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Oddeyri - breyting á aðalskipulagi 2018-2030
Málsnúmer 2019090318Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dagsett 22. október 2020 um tillögu að breytingu á aðalskipulagi á Oddeyri.
Skipulagsráð felur sviðsstjóra skipulagssviðs að gera tillögu að breytingu á skipulagsgögnum til að koma til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Sjúkrahúsið á Akureyri - breyting á deiliskipulagi vegna byggingar á hjólaskýli
Málsnúmer 2020100615Erindi Kára Magnússonar dagsett 22. október 2020, fyrir hönd Sjúkrahússins á Akureyri, þar sem óskað er eftir að deiliskipulagi fyrir sjúkrahúsið verði breytt þannig að byggja megi hjólaskýli sem er um 70 m² að grunnfleti, á tveimur hæðum, við D-álmu sjúkrahússins. Þá er jafnframt lagt fram erindi Fanneyjar Hauksdóttur dagsett 22. október 2020, fyrir hönd Sjúkrahússins á Akureyri, þar sem sótt er um að stækka anddyri við norðurhluta spítalans.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi umsóknir. Að mati ráðsins er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er ekki talin þörf á grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Akureyrarbæjar. Sviðsstjóra skipulagssviðs er falið að annast gildistöku hennar þegar deiliskipulagsuppdráttur berst.
Fylgiskjöl
Hólasandslína 3 - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2020060507Lögð fram fyrirspurn Landsnets dagsett 14. október 2020 varðandi tilfærslu á aðkomustígum að nýrri brú yfir Glerárgil.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við færslu á aðkomustígum í samræmi við fyrirspurn og telur að ný lega sé í samræmi við afmörkun þeirra í aðalskipulagi.
Fylgiskjöl
Hlíðarfjall - umsókn um skilti, umgengni á vatnsverndarsvæði
Málsnúmer 2020100319Erindi dagsett 12. október 2020 þar sem Hrönn Brynjarsdóttir fyrir hönd Norðurorku hf. sækir um leyfi til að setja upp tvö skilti um umgengni og umferð á vatnsverndarsvæðum Norðurorku.
Skiltin yrðu staðsett annars vegar í Glerárdal við aðkomuleið að Glerárstíflu efri og hins vegar við Lögmannshlíðarveg norðan Lögmannshlíðarkirkju.Skipulagsráð samþykkir að skiltin verði sett upp í samræmi við umsókn.
Fylgiskjöl
Strandgata 12 - endurnýjun hleðslustöðvar ON
Málsnúmer 2020100353Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindi dagsett 12. október 2020 þar sem Bjarni Þór Einarsson fyrir hönd Orku náttúrunnar ohf. sækir um leyfi fyrir skýli yfir hleðslustöð fyrirtækisins sem stendur á lóð nr. 12 við Strandgötu. Meðfylgjandi er samþykki lóðarhafa.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við að byggt verði skýli yfir hleðslustöðina og vísar afgreiðslu málsins til byggingarfulltrúa.
Austurvegur 11 - fyrirspurn vegna byggingu bílgeymslu
Málsnúmer 2020100478Erindi dagsett 15. október 2020 þar sem Teitur Björgvinsson leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu bílgeymslu við hús nr. 11 við Austurveg. Meðfylgjandi er teikning.
Þar sem fyrirhuguð bygging er á lóðarmörkum telur ráðið að forsenda þess að gerð verði breyting til samræmis við erindið sé að fyrir liggi samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar. Afgreiðslu frestað.
Krossanes 4 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna trjágróðurs
Málsnúmer 2020100524Erindi dagsett 19. október 2020 þar sem Þórdís Huld Vignisdóttir fyrir hönd TDK Foil Iceland ehf. sækir um leyfi til að planta trjám og runnum ofan við aflþynnuverksmiðjuna í Krossanesi 4.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við gróðursetningu innan lóðarinnar með fyrirvara um að samráð verði haft við umhverfis- og mannvirkjasvið um plöntutegundir og nákvæmari afmörkun svæðisins.
Fylgiskjöl
Hrímland 15-28 og Hrókaland 1-7 - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð og jarðvegsskiptum
Málsnúmer 2020100574Erindi dagsett 21. október 2020 þar sem SS Byggir ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvegsskiptum og gatnagerð fyrir hús 15, 18, 20, 22, 24, 26 og 28 við Hrímland og hús 1, 3, 5 og 7 við Hrókaland.
Skipulagsráð samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir gatnagerð í samræmi við umsókn enda verði hæðarsetning gatna unnin í samráði við skipulagssvið og umhverfis- og mannvirkjasvið. Afgreiðslu á leyfi fyrir jarðvegsskiptum fyrir húsin er vísað til byggingarfulltrúa.
Fylgiskjöl
Freyjunes 1 - fyrirspurn til skipulagssviðs
Málsnúmer 2020100438Erindi dagsett 15. október 2020 þar sem Sigurður Smári Hilmarsson, fyrir hönd Bygma Íslands ehf., óskar eftir að réttindi skráð á lóðina Freyjunes 1 verði færð frá Alorku ehf. yfir á Bygma Ísland ehf.
Skipulagsráð samþykkir yfirfærslu réttinda.
Gleráreyrar 1 - umsókn um leyfi fyrir auglýsingum á útiskilti
Málsnúmer 2020100212Erindi dagsett 7. október 2020 þar sem Eik fasteignafélag hf. sækir um leyfi fyrir birtingu auglýsinga á útiskilti Eikar á lóð Glerártorgs. Óskað er eftir leyfi til að birta aðrar auglýsingar á skiltinu heldur en þær er auglýsa þjónstu/vörur Glerártorgs.
Meirihluti skipulagsráðs gerir ekki athugasemd við að birtar verði aðrar auglýsingar en þær sem auglýsa þjónustu og vörur Glerártorgs.
Jón Þorvaldur Heiðarsson L-lista situr hjá og Arnfríður Kjartansdóttir V-lista greiðir atkvæði á móti og samþykkir ekki að birtar verði aðrar auglýsingar en þær sem auglýsa þjónustu og vörur Glerártorgs.Gleráreyrar 1 - umsókn um stækkun skiltis
Málsnúmer 2020100554Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindi dagsett 20. október 2020 þar sem Eik rekstrarfélag ehf. sækir um leyfi fyrir stækkun LED skilta sem standa á lóð nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að stækka skjáina í tæplega 5 metra á breidd og 4 metra á hæð.
Meirihluti skipulagsráðs samþykkir ekki stækkun LED skilta. Þórhallur Jónsson D-lista situr hjá.
Fylgiskjöl
Hafnarstræti 82 til 90 - lóðamál
Málsnúmer 2016050036Sviðsstjóri skipulagssviðs fór yfir stöðu mála varðandi frágang bílastæða við Hafnarstræti 86 og 86a.
Margrétarhagi 1 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2020100636Erindi dagsett 22. október 2020 þar sem BF Byggingar ehf. sækja um lóðina Margrétarhaga 1 og óska jafnframt eftir því að fá að byggja fjölbýlishús með 7-9 íbúðum í staðin fyrir raðhús. Um yrði að ræða sambærilegt hús og eru í byggingu við Halldóruhaga 4-6 og Jóninnuhaga 2-4.
Skipulagsráð hafnar því að breyta deiliskipulagi lóðar á þann veg að byggja megi fjölbýlishús með 7-9 íbúðum í staðinn fyrir raðhús með 5 íbúðum.
Nonnahagi 7 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2020100602Erindi dagsett 21. október 2020 þar sem FES ehf. sækir um lóð nr. 7 við Nonnahaga. Meðfylgjandi er yfirlýsing viðskiptabanka.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Baldursnes 5 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2020100397Erindi dagsett 14. október 2020 þar sem Naustagata 13 ehf. sækir um lóð nr. 5 við Baldursnes. Meðfylgjandi er yfirlýsing viðskiptabanka.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Nonnahagi 13 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2020100507Erindi dagsett 19. október 2020 þar sem Sverrir Gestsson sækir um lóð nr. 13 við Nonnahaga. Meðfylgjandi er yfirlýsing viðskiptabanka.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Steindórshagi 1-7 - umsókn um frest
Málsnúmer 2019090131Erindi dagsett 20. október 2020 þar sem Hafþór Helgason fyrir hönd HHS verktaka ehf, sækir um framkvæmdafrest á lóðinni nr. 1-7 við Steindórhaga til 1. júní 2021. Meðfylgjandi er tölvupóstur.
Skipulagsráð samþykkir að veita framkvæmdafrest í samræmi við fyrirliggjandi erindi.
Miðbær - uppfærsla deiliskipulags
Málsnúmer 2017010274Lögð fram til kynningar drög að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Akureyrar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2020
Málsnúmer 2019120357Lögð fram til kynningar fundargerð 785. fundar, dagsett 9. október 2020, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 7 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2020
Málsnúmer 2019120357Lögð fram til kynningar fundargerð 786. fundar, dagsett 15. október 2020, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 7 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2020
Málsnúmer 2019120357Lögð fram til kynningar fundargerð 787. fundar, dagsett 22. október 2020, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 6 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.