Fræðsluráð - 6
- Kl. 13:30 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Þórhallur Harðarson
- Guðmundur H Sigurðarson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Skólastefna 2018
Málsnúmer 2017080125Dagný Þóra Baldursdóttir L-lista boðaði forföll og einnig varamaður hennar. <br />
Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir stöðu vinnunnar við gerð skólastefnu.
Reglur um leikskólaþjónustu
Málsnúmer 2018020315Kynntar reglur um leikskólaþjónustu.
Fræðsluráð samþykkir framlagðar reglur um leikskólaþjónustu með lítilsháttar breytingum varðandi opnunartíma.
Skólaleikur
Málsnúmer 2018020316Farið var yfir stöðu verkefnisins Skólaleiks sem var samstarfsverkefni leik- og grunnskóla um fyrirkomulag leikskólastarfs hjá elsta árgangi leikskólans frá því að sumarleyfi lýkur og fram að skólabyrjun grunnskólans. Haustið 2017 var tilraun gerð með verkefnið sem var sett á fót í þeim tilgangi að flýta fyrir innritun í leikskólana.
Fræðsluráð lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið, hvernig til tókst og jákvæðum viðbrögðum vegna þess.
Ný persónuverndarlög
Málsnúmer 2017080040Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður kom á fundinn og fór yfir helstu áherslur í nýjum persónuverndarlögum sem snúa að skólaumhverfi.