Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 580
- Kl. 13:00 - 14:20
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 580
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Fjölnisgata 1a - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013120008Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Hringbergs ehf., kt. 480607-0900, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Fjölnisgötu 1a. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Kjarnagata 29 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer BN060292Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Kjarnagötu 29. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Jaðar - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016030021Erindi dagsett 3. mars 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Golfklúbbs Akureyrar, kt. 570169-7169, sækir um breytingar innanhúss í golfskála Jaðars. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson. Innkomin teikning 29. og 31. mars 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hólmatún 2 - Naustaskóli - umsókn um byggingarleyfi fyrir 2. áf.
Málsnúmer 2011040011Erindi móttekið 1. október 2013 þar sem Magnús Garðarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Naustaskóla að Hólmatúni 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Björgúlfsson dagsettar 3. mars 2016.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Austurvegur 12 - umsókn um breytta notkun
Málsnúmer 2016030163Erindi dagsett 19. mars 2016 þar sem Birgir Snorrason og Kristín Petra Guðmudsdóttir sækja um breytta notkun á hluta hússins að Austurvegi 12 í Hrísey til að nýta fyrir kaffihús í flokki II. Meðfylgjandi er teikning eftir Þröst Sigurðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Viðburðir - götu- og torgsala 2016
Málsnúmer 2015120155Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Óli Þór Jónsson f.h. Benediktu ehf., kt. 470212-0390, sækir um leyfi fyrir aðstöðuskúr fyrir rafhjólaleigu norðan Hafnarstrætis 101.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem svæðið er ætlað fyrir torgsöluvagna og senuvagn.
Langahlíð 18 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum
Málsnúmer 2014020138Erindi dagsett 28. mars 2016 þar sem Sigurður Bárðarson og Álfhildur Ólafsdóttir sækja um framlenginu á samþykkt byggingaráforma, sem samþykkt voru 3. apríl 2014, til tveggja ára.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Drekagil 16 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2016030188Erindi dagsett 30. mars 2016 þar sem Garðar Helgason sækir um að gera bílastæði við íbúð nr. 16 á lóð nr. 10 - 16 við Drekagil. Meðfylgjandi er samþykki nágranna og mynd.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem almenn umferð meðfram leiksvæðinu er óheimil og mælist til þess að lokað verði fyrir slíka umferð.