Bæjarráð - 3349
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3349
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Oddur Helgi Halldórsson
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Stefna vegna Brálundar - breyting á aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018
Málsnúmer 2011100126Tekin fyrir að nýju niðurstaða dóms, en bæjarráð fól á fundi sínum þann 13. desember sl. bæjarstjóra og bæjarlögmanni að vinna áfram að málinu og leggja tillögur fyrir bæjarráð.\nInga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2012-2013
Málsnúmer 2012010167Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 24. janúar 2013. Fundargerðin er í 5 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið a) og 4. lið til skipulagsdeildar, 1. lið b), 3. lið a), b), c), d) og e) og 5. lið til framkvæmdadeildar og 2. lið til framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar.

Fundargerðir á heimasíðu Akureyrarbæjar - fylgigögn
Málsnúmer 2012121174Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 10. janúar sl. Lögð fram drög dags. 28. janúar 2013 að verklagsreglum um birtingu gagna með fundargerðum á vef Akureyrarbæjar.

Bæjarráð samþykkir drögin með þeim breytingum sem fram komu á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Hverfisnefndir og hverfisráð - fundargerðir
Málsnúmer 2007020100Lagðar fram til kynningar eftirtaldar fundargerðir:\nFundargerð 46. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dags. 15. janúar 2013.\nFundargerð 66. fundar hverfisráðs Hríseyjar dags. 17. janúar 2013.\nFundargerðirnar má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir

Samband íslenskra sveitarfélaga - 27. landsþing
Málsnúmer 2013010135Lagt fram til kynningar erindi dags. 14. janúar 2013 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem boðað er til 27. landsþings Sambandsins á Grand hóteli í Reykjavík, föstudaginn 15. mars nk.

Sjúkratryggingar Íslands og Akureyrarkaupstaður - samningur um sjúkraflug fyrir árið 2013
Málsnúmer 20130101431. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dags. 18. janúar 2013:\nLögð voru fram drög, ódags., að samningi milli Sjúkratrygginga Íslands og Akureyrarkaupstaðar um sjúkraflug árið 2013.\nHelgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur fór yfir málið.\nFramkvæmdaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.\n

Bæjarráð samþykkir samninginn.

Slysavarnafélagið Landsbjörg - leiga á Íþróttahöll vegna landsþings 2013
Málsnúmer 2013010231Erindi dags. 18. janúar 2013 frá Jóni Svanberg Hjartarsyni framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar þar sem óskað er eftir því að fá afnot af Íþróttahöllinni og Brekkuskóla endurgjaldslaust dagana 24.- 25. maí nk. meðan á landsþingi félagsins stendur.

Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið með því að veita því afnot af Íþróttahöllinni og Brekkuskóla án endurgjalds. Styrkurinn greiðist af liðnum styrkveitingar bæjarráðs.

Vinabæjamót - Kontaktsmandsmøde 2013 - Randers
Málsnúmer 2013010256Lagt fram til kynningar erindi dags. 22. janúar 2013 frá borgarstjóranum í Randers þar sem fulltrúum Akureyrarkaupstaðar er boðið á tenglamót (Kontaktmandsmøde) í Randers dagana 15.- 17. ágúst nk.

Bæjarráð samþykkir að fulltrúar Akureyrarbæjar á tenglamótinu verði Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og bæjarráðsmennirnir Halla Björk Reynisdóttir og Oddur Helgi Halldórsson ásamt mökum.

Þegar hér var komið vék Ólafur Jónsson D-lista af fundi kl. 10:44.
Lögmannshlíðarsókn - fasteignagjöld - umsókn um styrk
Málsnúmer 2013010283Lögð fram umsókn dags. 24. janúar 2013 frá Lögmannshlíðarsókn þar sem sótt er um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista að hafna erindinu með vísan í nýsamþykktar reglur um styrki til félaga og félagasamtaka vegna fasteignaskatts.

Akureyrarkirkja - fasteignagjöld - umsókn um styrk
Málsnúmer 2013010249Lögð fram umsókn dags. 21. janúar 2013 frá Akureyrarkirkju þar sem sótt er um styrk til greiðslu fasteignaskatts.

Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista að hafna erindinu með vísan í nýsamþykktar reglur um styrki til félaga og félagasamtaka vegna fasteignaskatts.

Þegar hér var komið vék Sigurður Guðmundsson A-lista af fundi kl. 11:00.$line$
Afskriftir lána 2012
Málsnúmer 20121200341. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 23. janúar 2013:\nGuðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar lagði fram áætlun um afskriftir lána 2012.\nFélagsmálaráð samþykkir áætlunina og vísar málinu til bæjarráðs.\n\nÍ áætluninni kemur fram að farið er fram á afskriftir lána samtals að upphæð kr. 1.341.305.

Bæjarráð samþykkir afskrift lána að upphæð kr. 1.341.305.

Fjárhagsaðstoð 2013 - breyting á framfærslugrunni
Málsnúmer 20130101762. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 23. janúar 2013:\nGuðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið.\nLagt var fram minnisblað Guðrúnar Sigurðardóttur dags. 18. janúar 2013 um breytingu á framfærslugrunni í fjárhagsaðstoð.\nFélagsmálaráð samþykkir að hækka framfærslugrunn fjárhagsaðstoðar um 4.2% í samræmi við hækkun neysluvísitölu frá desember 2011 til desember 2012. \nMálinu vísað til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir framlagða breytingu á framfærslugrunni fjárhagsaðstoðar.

Breyting á reglum um sérstakar húsaleigubætur
Málsnúmer 2012121242Lögð fram tillaga um breytingu á reglum um sérstakar húsaleigubætur á Akureyri.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Glerárgata 26 - leigusamningur endurskoðun 2012
Málsnúmer 2012120020Lögð fram drög að breyttum leigusamningi vegna Glerárgötu 26.

Bæjarráð samþykkir samninginn.

Eyþing - samráðsvettvangur um sóknaráætlun Norðurlands eystra
Málsnúmer 2013010301Lagt fram erindi frá Eyþingi dags. 22. janúar 2013 þar sem óskað er eftir tilnefningu Akureyrarbæjar á 5 fulltrúum, þar af einn stjórnarmaður Eyþings, í samráðshóp um sóknaráætlun fyrir Norðurland eystra.

Bæjarráð tilnefnir bæjarfulltrúana Höllu Björk Reynisdóttur, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Tryggva Þór Gunnarsson, Guðmund Baldvin Guðmundsson og Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur sem fulltrúa Akureyrarbæjar.

Skákfélag Akureyrar - styrkbeiðni vegna minningarmóts um Jón Ingimarsson
Málsnúmer 2013010306Erindi dags. 28. janúar 2013 frá formanni Skákfélags Akureyrar þar sem óskað er eftir 80.000 kr. styrk vegna minningarmóts um Jón Ingimarsson skákmeistara sem halda á dagana 26.- 28. apríl nk.

Bæjarráð hafnar erindinu.

Fjárhagsáætlun 2013 - fræðslu- og uppeldismál
Málsnúmer 20130101911. liður í fundargerð skólanefndar dags. 21. janúar 2013:\nBreyting á samþykktri gjaldskrá fyrir dagforeldra vegna mistaka í útreikningum.\nSkólanefnd staðfestir leiðrétta gjaldskrá fyrir dagforeldra sem hækkar um 4,1% frá og með 1. mars 2013 samkvæmt samningsbundnum ákvæðum í kjarasamningi Einingar-Iðju.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.