Íþróttaráð - 171
- Kl. 14:15 - 15:52
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 171
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Birna Baldursdóttir
- Ólína Freysteinsdóttir
- Sigurjón Jónasson
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Grímsey - beiðni um sparkvöll í Grímsey
Málsnúmer 2015060187Á fundi sínum 26. júní 2015 vísaði stjórn Fasteigna Akureyrbæjar málinu til umfjöllunar í íþróttaráði. Erindið er frá 20. fundi hverfisráðs Grímeyjar dagsett 22. apríl 2015.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Íþróttaráð mun hafa erindið til hliðsjónar við gerð langtímaáætlunar íþróttamannvirkja.Kraftlyftingafélag Akureyrar og Íþróttafélagið Draupnir - framtíðarhúsnæði
Málsnúmer 2015070094Tekið fyrir erindi frá formanni ÍBA dagsett 9. júní 2015 þar sem óskað er eftir að íþróttaráð skoði möguleika á kaupum á framtíðarhúsnæði fyrir Draupni og KFA.
Erindið lagt fram til kynningar. Íþróttaráð mun í framhaldinu funda með hlutaðeigandi aðilum.
Jafnréttisstefna 2015-2019
Málsnúmer 2015060217Á fundi sínum þann 11. júlí 2015 vísaði samfélags- og mannréttindaráð drögum að jafnréttisstefnu til umsagnar hjá deildum og nefndum Akureyrarbæjar.
Íþróttaráð gerir engar athugasemdir.
Stjórnun og umsjón íþróttamannvirkja Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015080073Lagðar fram til kynningar og umræðu hugmyndir um breytingu á stjórnun íþróttamiðstöðvar Giljaskóla og íþróttamiðstöðvar Glerárskóla.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 24. júní 2015 um áætlaðan kostnað við fyrirhugaðar framkvæmdir við sundlaugarsvæðið. Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísaði málinu til umfjöllunar í íþróttaráði á fundi sínum 26. júní 2015.
Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð
Málsnúmer 2015080072Lagðar fram til kynningar og umræðu forsendur fjárhagsáætlunar íþróttamála fyrir starfsárið 2016.