Bæjarráð - 3323
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3323
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Hermann Jón Tómassonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Dalsbraut sunnan Þingvallastrætis og nágrenni - deiliskipulag - úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála
Málsnúmer 2011050111Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og kynntu úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 8. júní 2012 vegna kæru á deiliskipulagi Dalsbrautar.\nNiðurstaða úrskurðarnefndarinnar er sú að deiliskipulagstillagan hafi fengið lögformlega rétta málsmeðferð samkvæmt skipulagslögum. Í úrskurðinum kemur einnig fram að ákvæði deiliskipulags um lagningu brautarinnar fari ekki gegn réttmætum væntingum kærenda um þróun samgöngumannvirkja á skipulagssvæðinu. Úrskurðarnefndin kemst þó að þeirri niðurstöðu að misræmi sé á milli aðalskipulags og hins kærða deiliskipulags að því leyti að ekki eru sýndar tengingar á aðalskipulagi við lóð Lundarskóla og íþróttasvæði KA. Þessir tæknilegu annmarkar varða nyrðri hluta Dalsbrautar og verða leiðréttir af skipulagsyfirvöldum. Niðurstaða ÚUA hefur ekki áhrif á framkvæmdir við suður hluta Dalsbrautar og er áformað að þær hefjist á allra næstu dögum.\nLagt fram til kynningar.

Ungmennaráð - starfsemi 2010-2012
Málsnúmer 20110301331. liður í fundargerð samfélags- og mannréttindaráðs dags. 6. júní 2012:\nFulltrúar úr ungmennaráði Akureyrarbæjar komu á fundinn til að ræða sumartómstundir barna og sumarstörf unglinga og ungs fólks.\nAlfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála sat fundinn undir þessum lið.\nSamfélags- og mannréttindaráð þakkar fulltrúum ungmennaráðs fyrir góðar umræður. \nRáðið hvetur nefndir bæjarins til að senda ungmennaráði erindi til umfjöllunar.

Bæjarráð tekur undir bókun samfélags- og mannréttindaráðs.

Þórunnarstræti 99 - Húsmæðraskólinn - ráðstöfun eignar
Málsnúmer 20120100714. liður í fundargerð stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar dags. 8. júní 2012:\nLögð fram drög að kaupsamningi á 75% hluta ríkissjóðs í Þórunnarstræti 99.\nStjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kaupsamninginn fyrir sitt leyti.

Bæjarráð samþykkir kaupsamninginn.

Öldrunarheimili Akureyrar - viðauki við samning um byggingu hjúkrunarrýma
Málsnúmer 2009070007Lögð fram til kynningar drög að viðauka við samning um uppbyggingu og þátttöku í leigu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða á Akureyri dags. 11. maí 2010.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013 - forsendur og fjárhagsáætlunarferli
Málsnúmer 2012060047Lagðar fram forsendur og fjárhagsáætlunarferli vegna fjárhagsáætlunargerðar 2013.

Bæjarráð samþykkir framlagðar forsendur og fjárhagsáætlunarferli fyrir árið 2013.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013 - tekju- og fjárhagsrammar
Málsnúmer 2012060047Lögð fram tillaga að tekju- og fjárhagsrömmum ársins 2013.

Bæjarráð vísar fjárhagsrömmum til umfjöllunar í nefndum bæjarins og óskar eftir athugasemdum fyrir 18. ágúst nk.