Stjórn Akureyrarstofu - 234
- Kl. 16:15 - 18:50
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 234
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Guðmundur Ármann Sigurjónsson
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Ungmennafélag Akureyar - Akureyrarhlaup
Málsnúmer 2014060143Erindi dagsett 6. júní 2017 frá Söru Dögg Pétursdóttur formanni Akureyrarhlaupsnefndar UFA þar sem óskað er eftir styrk vegna Akureyrarhlaupsins 6. júlí 2017.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita styrk að upphæð kr. 100.000 vegna markaðsmála fyrir hlaupið.
Hríseyjarhátíð - styrkbeiðni 2017
Málsnúmer 2017050096Erindi dagsett 15. maí 2017 frá Lindu Maríu Ásgeirsdóttur f.h. undirbúningsnefndar Hríseyjarhátíðar þar sem óskað er eftir styrk v/ hátíðarinnar sem fer fram 7.- 9. júlí nk.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir veita styrk að upphæð kr. 300.000 vegna Hríseyjarhátíðar 2017.
Afnot af Friðbjarnarhúsi fyrir leikfangasýningu
Málsnúmer 2015100043Umsókn Guðbjargar Ringsted um áframhaldandi afnot af Friðbjarnarhúsi fyrir leikfangasafn.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að Friðbjarnarhús verði áfram til afnota fyrir leikfangasafn. Samkvæmt viðmiðunarreglum um afnot af húsinu samþykkir stjórnin að gerður verði samningur til allt að fjögurra ára.
Akureyrarkirkja - móttaka ferðamanna - styrkbeiðnir 2015-2020
Málsnúmer 2015050018Erindi dagsett 25. apríl 2017 frá Svavari Alfreð Jónssyni sóknarpresti í Akureyrarkirkju og Ólafi Rúnari Ólafssyni formanni sóknarnefndar Akureyrarkirkju þar sem óskað er eftir stuðningi til að hægt sé að annast móttöku ferðamanna og leiðsögn um kirkjuna yfir sumarmánuðina.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 50.000.
Fjárhagsáætlun Akureyrarstofu 2018
Málsnúmer 2017060006Umræða um starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2018.
Lögð fram drög að starfsáætlun vegna þeirra málaflokka sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.Laxdalshús - útleiga
Málsnúmer 2015010247Þrír lýstu yfir áhuga á að leigja. Ein frá einkaaðila sem vill leigja húsið sem íbúðarhús og tvær sem ganga út á menningar- og listastarfsemi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela deildarstjóra Akureyrarstofu að vinna málið áfram og ljúka því.
Íslensku sumarleikarnir 2017 - styrkbeiðni
Málsnúmer 2017060153Erindi dagsett 21. júní 2017 frá Davíð Rúnar Gunnarssyni f.h. Viðburðastofu Norðurlands þar sem óskað er eftir stuðningi við að upphæð kr. 1.800 þúsund við Íslensku sumarleikana sem haldnir verða um komandi Verslunarmannahelgi. Jafnframt er óskað eftir því að gerður verði 3ja ára samningur um stuðning við hátíðina.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja Íslensku sumarleikana um kr. 1.800.000 vegna ársins 2017. Skoðað verður að leikunum loknum hvort gengið verður til samninga um leikana til lengri tíma.