Fræðsluráð - 2
- Kl. 13:30 - 15:54
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Heimir Haraldsson
- Hildur Betty Kristjánsdóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Þórhallur Harðarson
- Einar Gauti Helgasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Umbætur í leikskólum - bréf frá skólastjórum
Málsnúmer 2019010098Erindi frá skólastjórum leikskóla Akureyrarbæjar lagt fram til umræðu.
Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla kom á fundinn og fylgdi málinu úr hlaði.Vinna er nú þegar hafin við að afla gagna um rými í leikskólum.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að vinna málið áfram og svara erindinu.Fylgiskjöl
Reglur um leikskólaþjónustu
Málsnúmer 2018020315Endurskoðaðar reglur um leikskólaþjónustu lagðar fram til umræðu.
Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla sat fundinn undir þessum lið.Fræðsluráð samþykkir framlagðar breytingar á reglum um leikskólaþjónustu.
Skólasamningur leikskóla - endurnýjun 2019
Málsnúmer 2019010080Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla kynnti breytingar sem gerðar hafa verið á skólasamningi leikskóla.
Fræðsluráð samþykkir framlagðar breytingar á skólasamningi leikskóla.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing
Málsnúmer 2014030109Alfa Aradóttir og Bryndís Elfa Valdemarsdóttir frá samfélagssviði komu á fundinn og kynntu aðgerðaráætlun við innleiðingu Barnasáttmálans hjá Akureyrarbæ 2019-2021.
Fylgiskjöl
Eftirfylgd með kennslustundum í list- og verkgreinum
Málsnúmer 2019010099Úttekt frá Menntamálastofnun um fjölda kennslustunda í list- og verkgreinum í grunnskólum Akureyrar lögð fram til kynningar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram og gera ráðinu grein fyrir niðurstöðum að því loknu.
Fylgiskjöl
Skóladagatal leik- og grunnskóla 2019-2020
Málsnúmer 2019010117Verklag við gerð skóladagatals leik- og grunnskóla lagt fram til kynningar.
Viðurkenningar fræðsluráðs
Málsnúmer 2016010018Endurskoðaðar verklagsreglur vegna viðurkenninga fræðsluráðs lagðar fram til kynningar.
Fræðsluráð samþykkir endurskoðaðar verklagsreglur.
Fylgiskjöl