Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 994
- Kl. 13:30 - 14:10
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 994
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
- Ólafur Elvar Júlíussonverkefnastjóri byggingarmála
- Katrín Rós Ívarsdóttirverkefnastjóri fasteignaskráningar
Oddeyrarskóli - umsókn um byggingaráform
Málsnúmer 2024040578Erindi dagsett 11. apríl 2024 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss í Oddeyrarskóla. Innkomin gögn eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Oddagata 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024090334Erindi dagsett 5. september 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Ingibjargar Baldursdóttur sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir svölum á 1. og 2. hæð húss nr. 7 við Oddagötu. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Eignaskiptayfirlýsing skal liggja fyrir áður en byggingarheimild er gefin út.
Lundargata 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1
Málsnúmer 2024110321Erindi dagsett 10. nóvember 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Gleypis ehf sækir um breytingar á geymslu í vinnustofu og íbúð í bakhúsi á lóð nr. 6 við Lundargötu. Jafnframt að byggja tvöfaldan bílskúr. Innkomin gögn eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Hvannavellir 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 2
Málsnúmer 2024110387Erindi dagsett 11. nóvember 2024 þar sem Björn Guðbrandsson f.h. Korputorgs ehf sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 12 við Hvannavelli. Innkomin gögn eftir Björn Guðbrandsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Lyngholt 20 - fyrirspurn um byggingaráform
Málsnúmer 2024090668Erindi dagsett 11. september 2024 þar sem Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir óskar eftir breyttri notkun á bílskúr við hús nr. 20 við Lyngholt.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.