Beint í efni

Vefur í vinnslu

Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is

Viltu fá nýjar fregnir af framkvæmdum í Móahverfi?

Af óviðráðanlegum orsökum hefur nokkurt hlé verið á því að tölvupóstar séu sendir út á póstlista um framkvæmdir í Móahverfi en þráðurinn verður tekinn upp að nýju föstudaginn 28. febrúar nk.

Af óviðráðanlegum orsökum hefur nokkurt hlé verið á því að tölvupóstar séu sendir út á póstlista um framkvæmdir í Móahverfi en þráðurinn verður tekinn upp að nýju föstudaginn 28. febrúar nk.

Reiknað er með að framvegis verði tölvupóstar sendir út að jafnaði einu sinni í mánuði í stað vikulega áður. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á póstlistann þar sem greint verður frá helstu framkvæmdum í Móahverfi og stöðu mála þar. Það er verkfræðistofan Mannvit sem hefur umsjón og eftirlit með framkvæmdum og mun sjá um útsendingu tölvupósta vegna þeirra.

Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að leggja fráveitu og burðarlag í Síðubraut. Verktakar hafa notið góðs af mildu veðri síðustu vikur og hefur vinna gengið mjög vel. Í efri götum hverfisins er þessa dagana verið að tengja byggingaraðila við rafmagn.!