Beint í efni

Bæjarstjórnarfundir eru að jafnaði fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar. Í júlí og ágúst er yfirleitt fundarhlé hjá bæjarstjórn og hefur bæjarráð þá heimild til fullnaðarafgreiðslu mála. Fundirnir eru haldnir í sal á 1. hæð í Ráðhúsinu, Geislagötu 9 og hefjast kl. 16:00. Upptökur af bæjarstjórnarfundum má finna hér.

Upptaka frá bæjarstjórnarfundinum 15. apríl

Dagskrá bæjarstjórnarfundar 20. maí: 

1.  2025050208 - Breyting á deiliskipulagi Holtahverfis - Fjölbýlishús við Miðholt

Liður 2 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 14. maí 2025:
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis norður sem nær til svæðis sem afmarkast af Langholti, Miðholti, Krossanesbraut og lóðamörkum Undirhlíðar 1 og 3. Í breytingunni felst að lóðir við Miðholt 1-9 eru sameinaðar í eina lóð auk þess sem lóðarmörk færast aðeins til suðvesturs. Byggingarreitir eru óbreyttir en gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja á hverjum þeirra þriggja hæða fjölbýlishús í stað tveggja hæða skv. gildandi deiliskipulagi. Þá er gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja einn bílakjallara innan lóðarmarka með aksturstengingu frá Langholti. Áfram verður gert ráð fyrir bílastæðum við Miðholt en nú er eingöngu miðað við að tengingar inn á bílastæðið verði tvær í stað fimm. Fjöldi íbúða eykst úr 30 í 54. Þá er sett kvöð um trjágróður innan fjölbýlishúsalóðar, bætt er við stígum og gróðri á opnu svæði auk þess sem gerðar eru breytingar á hámarkshraða í Langholti og bætt við gönguþverun.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis norður verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða auglýsingu á breytingu á aðalskipulagi sem nær til sama svæðis.
Jón Hjaltason óflokksbundinn situr hjá.

2.  2024060172 - Holtahverfi - ÍB17 OG VÞ17 - breyting á aðalskipulagi

Liður 3 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 14. maí 2025:
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem varðar íbúðasvæði við Miðholt og verslunar- og þjónustusvæði við Hlíðarbraut. Á fundi skipulagsráðs 12. mars sl. var tekið jákvætt í að haldið yrði áfram með ferli aðalskipulagsbreytingar til samræmis við fyrirliggjandi tillögu en afgreiðslu var frestað þar til fyrir lægi samsvarandi tillaga að deiliskipulagi vegna lóða við Miðholt.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi liggur nú fyrir sbr. liður 2.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að breytingu á aðalskipulagi verði auglýst skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samhliða tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðis sem afmarkast af Langholti, Miðholti, Krossanesbraut og lóðamörkum Undirhlíðar 1 og 3.
Jón Hjaltason óflokksbundinn situr hjá.

3.  2024040964 - Gleráreyrar - Aðalskipulagsbreyting

Liður 4 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 14. maí 2025:
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillaga að breytingu á aðalskipulagi sem nær til svæðis sem afmarkast af götunum Borgarbraut, Glerárgötu, Þórunnarstræti, Byggðavegi og Klettaborg. Í breytingunni felst að landnotkun svæðisins breytist í miðsvæði þar sem auk uppbyggingar verslunar- og þjónustu verði heimilt að byggja allt að 250 íbúðir. Þá er einnig gert ráð fyrir jöfnunarstöð strætó á svæði milli Borgarbrautar og Glerár á um 0,2 ha svæði og lega stofnstígs breytist. Athugasemdir bárust frá þremur aðilum auk umsagna frá Norðurorku, Minjastofnun, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni.
Afgreiðslu málsins var frestað á fundi ráðsins þann 9. apríl 2025 en er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs um athugasemdir sem bárust vegna fyrirhugaðrar jöfnunarstöðvar strætó við Borgarbraut. Er jafnframt lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að umsögn um efni innkominna athugasemda og umsagna.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt tillögu að umsögn um efni innkominna athugasemda og umsagna.
Sindri S. Kristjánsson S-lista óskar bókað:
Lögð er fram alvarleg athugasemd við að nú þegar hefur Akureyrarbær auglýst útboð á byggingu jöfnunarstoppistöðvarinnar áður en bæjarstjórn hefur samþykkt og auglýst breytt aðal- og deiliskipulag vegna framkvæmdanna. Hér er gengið að mínu mati freklega gegn samþykktum bæjarins og öðrum reglum og viðteknum venjum um aðkomu kjörinna fulltrúa að ákvarðanatöku í stjórnum og ráðum bæjarins. Þá eru ítrekaðar fyrri efasemdir um þessi áform sem fulltrúi Samfylkingarinnar hefur þegar komið á framfæri við vinnslu þessa máls á fyrri stigum.

4.  2024120340 - Jöfnunarstoppistöð - breyting á deiliskipulagi Glerár

Liður 5 í fundargerð skipulagsráðs dagsettri 14. maí 2025:
Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillaga að breytingu á deiliskipulagi Glerár, frá stíflu til sjávar. Breytingin felur í sér að skilgreind er ný jöfnunarstoppistöð norðan Glerártorgs ásamt ýmsum breytingum á stígum, stofnstígum, göngum, brúm o.fl. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum á kynningartíma auk umsagna frá Norðurorku, Minjastofnun og umhverfis- og mannvirkjasviði. Málið var lagt fyrir á fundi skipulagsráðs 9. apríl sl. og var afgreiðslu þá frestað þar til fyrir lægi umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs um efni innkominna athugasemda og umsagna. Er nú lögð fram umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að fyrirliggjandi tillaga að breytingu á deiliskipulagi Glerár, frá stíflu til sjávar, verði samþykkt með þeirri breytingu að sleppistæði verði felld út og afmörkun skipulagssvæðis aðlagað aðliggjandi deiliskipulagsáætlun Tryggvabrautar. Er jafnframt samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að útbúa tillögu að umsögn um fyrirliggjandi athugasemdir, byggða á umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs, sem lögð verði fyrir bæjarstjórn.
Sindri S. Kristjánsson S-lista óskar bókað:
Vísað er til bókunar við lið nr. 4 í fundargerð þessa fundar og sömu alvarlegu athugasemdir gerðar hér, enda um að ræða sitt hvora hliðina á sama pening.

5.  2025050794 - Félagsaðstaða í Víðilundi - stækkun og endurbætur

Umræða um félagsaðstöðu eldri borgara á Akureyri. Málshefjandi er Gunnar Már Gunnarsson B-lista.

6.  2023010626 - Skýrsla bæjarstjóra

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fer yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.

Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 15. maí 2025
Bæjarráð 8. og 15. maí 2025
Skipulagsráð 14. maí 2025
Umhverfis- og mannvirkjaráð 6. maí 2025

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir