Vefur í vinnslu
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Fræðslu- og lýðheilsusvið veitir sérfræðiþjónustu fyrir nemendur í grunn- og leikskólum.
Starfsmenn skóla og foreldrar geta sótt um þjónustuna með eyðublaðinu Tilvísun til sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla. Eyðublöðin fást í öllum leik- og grunnskólum og á skrifstofu sviðsins, Glerárgötu 26. Umsóknum skal skilað þangað.
Starfsmenn meta vanda barna með prófum, viðtölum og skoðun á stöðu barnsins. Þeir vinna með fjölskyldum og skólum til að finna bestu úrbætur og nýta sérúrræði í skólum eins og sérdeildir Gilja- og Síðuskóla, skammtíma og skólavistun Þórunnarstræti og Hlíðarskóla. Ef þörf er á, vísa þeir börnum til sérfræðinga á öðrum stofnunum, t.d. Barna- og unglingageðdeild Landspítalans eða Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, í samvinnu við foreldra.
Fræðslu- og lýðheilsusvið, Glerárgötu 26, sími 460 1000, akureyri (hjá) akureyri.is. Afgreiðslutími er virka daga 9-15.
Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar
Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA)
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Fræðslu- og lýðheilsusvið sinnir sérfræðiþjónustu við grunn- og leikskóla að því er varðar málefni einstakra nemenda. Starfsmenn skóla og foreldrar geta sótt um sérfræðiþjónustu fyrir börn á "Tilvísun til sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla" og er umsóknum skilað á skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs. Umsóknareyðublöðin má fá í öllum leik- og grunnskólum bæjarins og á skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs, Glerárgötu 26.
Sem dæmi um vanda barns sem leitað er aðstoðar fyrir má nefna sértæka námserfiðleika, þroskafrávik, hegðunarvanda, einelti og tilfinningalega erfiðleika.
Starfsmenn meta vanda barns með prófunum, viðtölum og skoðun á stöðu barnsins og gera tillögur um úrbætur í samvinnu við fjölskyldu og skóla. Samvinna er við staði sem bjóða ýmis sérúrræði, svo sem sérdeild Giljaskóla,sérdeild Síðuskóla, skammtíma og skólavistun Þórunnarstræti og Hlíðarskóla. Einnig er samstarf við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA).
Nauðsynlegt getur verið að leita eftir þjónustu víðar t.d.á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Þroska- og hegðunarstöð, SAk , HSN eða hjá öðrum aðilum og vísa þá starfsmenn deildarinnar á viðeigandi stofnun í samvinnu við foreldra.