Beint í efni

Vefur í vinnslu

Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is

Frístund

Frístund er í boði í öllum grunnskólum Akureyrarbæjar fyrir börn frá 1. – 4. bekk eftir skólatíma, til kl. 16:15. Skráning fer fram í gegnum Völu frístund.

Staðfest skráning gildir út allt skólaárið en foreldrar geta breytt dvalartíma fyrir 20. hvers mánaðar á undan. Lengd viðvera er í boði flesta skólafrídaga eins og t.d. viðtalsdaga, starfsdaga, haust/vetrarfrí, jóla- og páskafrí. Skrá þarf nemendur sérstaklega þá daga sem lengd viðvera er í boði og er greitt fyrir hana samkvæmt gjaldskrá Akureyrarbæjar.

Sótt er um tekjutengdan afslátt inn á Þjónustugátt Akureyrarbæjar. Afslátturinn er veittur af vistunartíma í frístund (en ekki fæðiskostnaði) og er reiknaður út frá tekjum og hjúskaparstöðu samkvæmt skattframtali síðasta árs.

Hafa samband við frístund

SkóliSímanúmer
Brekkuskóli414-7979
Giljaskóli462-4825
Glerárskóli461-1253
Lundarskóli462-4560
Naustaskóli460-4111
Oddeyrarskóli460-9557
Síðuskóli461-3473