Sundlaug Akureyrar
Sundlaug Akureyrar er vatnaparadís fyrir alla fjölskylduna.

Á svæðinu er að finna tvær 25 metra útilaugar og 12,5 metra innilaug. Þrjár rennibrautir eru á svæðinu sem njóta mikilla vinsælda. Á útisvæði eru fjórir heitir pottar, tvær vaðlaugar og kaldur pottur. Í yfirbyggðum sal er volgur innipottur. Auk þess er á sumrin sólbaðsaðstaða og leiksvæði með gervigrasi.
Skólastígur 4, 600 Akureyri
Sími: 461 4455
Netfang: sund@akureyri.isVerð 2025:
Fullorðnir (18 ára og eldri) - 1.350 kr.
Börn (6-17 ára) - 300 kr.
Sjá meira í gjaldskráSjá hvaða brautir eru fráteknar í Sundlaug Akureyrar (brautanýting).
Aðgengi fyrir alla
Aðgengi hjólastóla að búningsklefum er gott. Búningsklefar eru með sérstök rými fyrir fatlað fólk sem þarf á aðstoð að halda við sundferðir. Þessir rými eru með góðu hjólastólaaðgengi.
Í Sundlaug Akureyrar er í boði einstaklingsklefi á 2. hæð byggingarinnar. Einstaklingsklefinn er aðgengilegur fyrir fatlaða og lyfta er á milli hæða. Í klefanum eru læstir skápar, hreyfanlegur bekkur og handsturta með stuðningshandfangi. Stuðningshandföng eru einnig við klósett.
Einstaklingsklefinn er opinn öllum sem um hann biðja.
Segllyfta er í boði í Sundlaug Akureyrar og einnig stólalyfta að innilaug, báðum útilaugunum og stórum heitum potti sem er 38°C.
Opnunartímar
Vetraropnun 24. ágúst til 31. maí | |
---|---|
Mánudaga – föstudaga: | 06:45 – 21:00 |
Laugardaga: | 09:00 – 19:00 |
Sunnudaga: | 09:00 – 19:00 |
Sumaropnun 1. júní til 23. ágúst | |
Mánudaga – föstudaga: | 06:45 – 21:00 |
Laugardaga: | 08:00 – 21:00 |
Sunnudaga: | 08:00 – 19:30 |
Afgreiðslutími frídaga
Sérstakir frídagar / | Special opening hours | |
---|---|---|
Baráttudagur verkalýðsins | 1. maí - Labour Day | LOKAÐ (Closed) |
Uppstigningardagur | 29. maí - Ascension | 9:00 - 19:00 |
Hvítasunnudagur | 8. júní - Whit Sunday | 8:00 - 19:30 |
Annar í Hvítasunnu | 9. júní - Whit Monday | 8:00 - 19:30 |
Þjóðhátíðardagur Íslendinga | 17. júní - National Day | LOKAÐ (Closed) |