Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 584
- Kl. 13:00 - 14:40
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 584
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill skipulagsstjóra
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Mýrarvegur 117- umsókn um leyfi fyrir svalalokun
Málsnúmer 2012060184Erindi dagsett 19. apríl 2016 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Mýrarvegs 117, húsfélags kt. 411106-0120, sækir um leyfi til að breyta útliti svalalokana á íbúð 501 og 503 við Mýrarveg 117. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Mýrarvegur 111 - umsókn um leyfi fyrir svalalokun
Málsnúmer 2014070117Erindi dagsett 19. apríl 2016 þar sem Ágúst Hafsteinsson f.h. Mýrarvegs 111, húsfélags kt. 571100-2820, sækir um leyfi til að breyta útliti svalalokana á 5. hæð og gerð og útliti á öðrum hæðum hússins við Mýrarveg 111. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Gleráreyrar 1, læknastofur - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040153Erindi dagsett 19. apríl 2016 þar sem Gunnar Bogi Borgarson f.h. EF 1, kt. 681113-0960, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af 2. hæð á Gleráreyrum 1 og innrétta þar læknastofur. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gunnar Boga Borgarson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Kjarnagata 12-14 - breytingar
Málsnúmer BN060244Erindi dagsett 20. apríl 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson f.h. Búseta Norðurlandi hsf., kt. 560484-0119, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir Kjarnagötu 12-14, íbúð 0101. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Kjarnalundur lnr. 150012 - byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss
Málsnúmer 2014120088Erindi dagsett 20. apríl 2016 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Kjarnalundar ehf., kt. 541114-0330, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnalundi, landnr. 150012. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Davíðshagi 1, spennistöð - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040157Erindi dagsett 20. apríl 2016 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Norðurorku kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð á lóð nr. 1 við Davíðshaga.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Rangárvellir - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2016040167Erindi dagsett 22. apríl 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Norðurorku, kt. 550978-0169, sækir um breytingar á bílastæði, fjölgun þeirra um 11 stæði við hús nr. 5 við Rangárvelli 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Daggarlundur 6 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040165Erindi dagsett 22. apríl 2016 þar sem Haraldur Árnason f.h. Margrétar Svanlaugsdóttur og Guðmundar Viðars Gunnarssonar sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 6 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra hafnar erindinu þar sem hönnun uppfyllir ekki kröfur um algilda hönnun og fjölda annarra athugasemda.
Oddeyrartangi, þak - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040187Erindi dagsett 26. apríl 2016 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Polaris Seafood ehf., kt. 551007-1030, sækir um breytingar á þaki húss merkt 3, mhl. 12, á lóð við Oddeyrartanga, lnr. 149144. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Norðurbyggð 15 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040188Erindi dagsett 26. april 2016 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Árna Friðrikssonar sækir um breytingar á baðherbergisglugga á íbúð nr. 15 á lóðinni nr. 11-19 við Norðurbyggð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgir Ágústsson og samþykki meðeigenda.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Jaðarstún 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040103Erindi dagsett 14. apríl 2016 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningu af Jaðarstúni 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 26. apríl 2016.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Jaðarstún 4 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016040104Erindi dagsett 14. apríl 2016 þar sem Birgir Ágústsson f.h. Byggingarfélagsins Hyrnu ehf., kt. 710594-2019, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningu á Jaðarstúni 4. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson. Innkomnar teikningar 26. apríl 2016.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.