Íþróttaráð - 163
- Kl. 14:00 - 15:50
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 163
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Birna Baldursdóttir
- Ólína Freysteinsdóttir
- Sigurjón Jónasson
- Þórunn Sif Harðardóttir
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Líkamsræktin Bjarg - frístundastyrkur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015020021Erindi dagsett 14. janúar 2015 frá Ólafi Ó. Óskarssyni f.h. Líkamsræktarinnar Bjargs þar sem óskað er eftir að Bjarg fá að taka á móti frístundastyrk Akureyrarbæjar fyrir námskeið 12-17 ára unglinga.
Íþróttaráð samþykkir erindið og heimilar Bjargi að taka á móti frístundastyrk fyrir 12 vikna námskeið 12-17 ára unglinga.
Kvennalandsleikur í handbolta til Akureyrar
Málsnúmer 2015020023Erindi dagsett 8. desember 2014 frá Jóni Óskari Ísleifssyni þar sem óskað er eftir aðkomu Akureyrarbæjar við að fá kvennalandsleik í handknattleik til Akureyrar.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.
Heilsa og lífskjör íslenskra skólanema - Akureyri
Málsnúmer 2014120009Lagt fram til kynningar og umræðu samanburður á hluta af niðurstöðum úr könnunninni 'Heilsa og lífskjör íslenskra skólanema'. Upplýsingar úr könnuninni tengdum nemendum á Akureyri árið 2010 og 2014 bornar saman.
Samþykktir fastanefnda - endurskoðun
Málsnúmer 2013060144Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir íþróttaráð.
Íþróttaráð samþykkir drög að Samþykkt fyrir íþróttaráð. Samþykktin send til bæjarráðs til frekari afgreiðslu.
Starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018
Málsnúmer 2014080084Umræður og vinna við starfsáætlun íþróttaráðs 2015-2018 með tilliti til íþróttastefnu Akureyrarbæjar og langtímaáætlunar íþróttaráðs.