Bæjarráð - 3511
- Kl. 08:30 - 09:24
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3511
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Húsaleigubætur
Málsnúmer 20160502791. liður í fundargerð velferðarráðs dagsett 15. júní 2016:
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi mættu á fund ráðsins og gerðu grein fyrir áhrifum nýlegra breytinga á reglum um sérstakar húsaleigubætur.
Velferðarráð leggur til að reglurnar verði óbreyttar en að skerðingarhlutfall vegna tekna verði 0,67% í stað 1,35% og vísar málinu í bæjarráð til lokaafgreiðslu.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að draga til baka þær breytingar sem snúa að tekjuviðmiðum í reglum um sérstakar húsaleigubætur, sem samþykktar voru á fundi bæjarstjórnar 15. mars sl. Er fjármálastjóra falið að ganga frá breytingum á reglunum og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lagðar fram til kynningar fundargerðir 279. og 280. fundar stjórnar Eyþings dagsettar 20. apríl og 11. maí 2016.
Fundargerðirnar má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdirStjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2016
Málsnúmer 2016010056Lögð fram til kynningar fundargerð 840. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 2. júní 2016. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: https://www.samband.is/um-sambandid/skipulag/stjorn-sambandsins/
Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð
Málsnúmer 2010020035Lögð fram 101. fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dagsett 9. júní 2016. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir
1. og 2. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði, bæjarráð vísar 3. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar.
Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir 2016
Málsnúmer 2016010036Lögð fram fundargerð 73. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dagsett 19. maí 2016.
Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/naustahverfi/fundargerdirBæjarráð vísar 2. lið til framkvæmdadeildar og 1. liður er lagður fram til kynningar í bæjarráði.
Öldungaráð Akureyrarkaupstaðar 2016 - fundargerðir
Málsnúmer 2016020017Lagðar fram til kynningar fundargerðir 3. og 4. fundar öldungaráðs Akureyrarkaupstaðar dagsettar 14. mars og 15. júní 2016.
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2016-2019, 764. mál
Málsnúmer 2016060099Lagt fram til kynningar erindi dagsett 15. júní 2016 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2016-2019, 764. mál 2016.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 25. júlí 2016 á netfangið: nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/1284.html