Atvinnumálanefnd - 15
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 15
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonformaður
- Erla Björg Guðmundsdóttir
- Jóhann Jónsson
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Stefán Guðnason
Starfsmenn
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttirverkefnastjóri atvinnumála ritaði fundargerð
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Akureyri
Málsnúmer 2013090027Stefán Guðnason Æ-lista mætti í forföllum Margrétar Kristínar Helgadóttur. <br />
Undirbúningur Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar á Akureyri er farinn á fullt og er stefnt að því að hún verði haldin 4.- 6. mars næstkomandi.
Verkefnastjóri atvinnumála kynnti undirbúningsvinnuna auk þess sem rætt var um að afhenda viðurkenningar atvinnumálanefndar á helginni.Atvinnumálanefnd felur verkefnastjóra atvinnumála að auglýsa eftir tilnefningum til athafna- og nýsköpunarverðlauna Akureyrarbæjar.
Junior Achievement á Íslandi
Málsnúmer 2016010102Rætt um verkefnið Junior Achievement á Íslandi og mikilvægi þess að framhaldsskólar utan höfuðborgarsvæðisins hafi tækifæri og bolmagn til að taka þátt.
Starfsáætlun atvinnumálanefndar 2016
Málsnúmer 2016010091Rætt um starfsáætlun atvinnumálanefndar 2016.
Ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði lengri vinnufundur þar sem farið verður yfir verkefni atvinnustefnu og starfsáætlun ársins.
Verkefni verkefnastjóra atvinnumála
Málsnúmer 2015070006Verkefnastjóri atvinnumála gerði munnlega grein fyrir verkefnum sínum síðustu vikur svo sem Brothættar byggðir, Atvinnu- og nýsköpunarhelgina, ferðamálastefnu og fleira.