Bæjarráð - 3335
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3335
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Logi Már Einarssonáheyrnarfulltrúi
- Njáll Trausti Friðbertssonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013
Málsnúmer 2012060047Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri fóru yfir fjárhagsáætlun stoðþjónustudeilda fyrir árið 2013.\nLagt fram til kynningar.

Hverfisnefndir og hverfisráð - fundargerðir
Málsnúmer 2007020100Lagðar fram til kynningar fundargerð 42. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dags. 11. september 2012 og fundargerð 62. fundar hverfisráðs Hríseyjar dags. 12. september 2012.

Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 232. fundar stjórnar Eyþings dags. 11. september 2012.

Menningarhúsið Hof - rekstur ársins 2011
Málsnúmer 20120800593. liður í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dags. 20. september 2012:\nFarið yfir tillögur um ráðstöfun á rekstrarafgangi Menningarfélagsins Hofs sem kynntur var á síðasta fundi stjórnar.\nStjórn Akureyrarstofu gerir það að tillögu sinni til bæjarráðs að fjármununum verið varið til að auka svigrúm Menningarsjóðs Akureyrar.

Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnar Akureyrarstofu.

Um leið og bæjarráð fagnar góðri afkomu Menningarfélagsins Hofs þá upplýsir bæjarráð að Akureyrarbær leggur tæpar 300 milljónir kr. til reksturs menningarhússins.

Þjóðaratkvæðagreiðsla 20. október 2012
Málsnúmer 2012090020Lagt fram erindi dags. 2. október 2012 frá formanni kjörstjórnar Akureyrar vegna komandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 20. október nk. Þar kemur fram tillaga kjörstjórnar um að Akureyrarkaupstað verði skipt í tólf kjördeildir, tíu á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey. Gerð er tillaga um að á Akureyri verði kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri, í Hrísey verði kjörstaður í Hríseyjarskóla og að í Grímsey verði kjörstaður í félagsheimilinu Múla. Lagt er til að tveir kjörklefar verði í hverri kjördeild á Akureyri, í Hrísey og í Grímsey. Þá hefur kjörstjórn ennfremur ákveðið að leggja til við bæjarráð að kjörfundur standi frá klukkan 09:00 til 22:00 á Akureyri, Hrísey og í Grímsey. Óskar kjörstjórn eftir því við bæjarráð að ofangreindar tillögur verði samþykktar.

Bæjarráð samþykkir tillögur kjörstjórnar.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

Uppbyggingarsamningur KA 2012
Málsnúmer 20120902203. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 4. október 2012:\nDrög að uppbyggingar- og framkvæmdasamningi við KA lagður fyrir íþróttaráð.\nÍþróttaráð samþykkir samninginn og vísar honum áfram til bæjarráðs. \nÍþróttaráð skipar Þorvald Sigurðsson sem fulltrúa íþróttaráðs í vinnuhóp Fasteigna Akureyrarbæjar vegna fyrirhugaðra framkvæmda.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.