Öldungaráð - 36
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 36
Nefndarmenn
- Hjálmar Pálssonformaður
- Hildur Brynjarsdóttir
- Brynjólfur Ingvarsson
- Hallgrímur Gíslasonfulltrúi EBAK
- Úlfhildur Rögnvaldsdóttirfulltrúi EBAK
- Þorgerður Jóna Þorgilsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Bjarki Ármann Oddssonrekstrarstjóri ritaði fundargerð
Virk efri ár
Málsnúmer 2022081092Héðinn Svarfdal Björnsson verkefnastjóri lýðheilsumála kynnti stöðuna á Virkum efri árum.
Öldungaráð þakkar Héðni fyrir kynninguna.
Ársskýrsla öldungaráðs 2023 - 2024
Málsnúmer 2024030749Lögð fram ársskýrsla öldungaráðs 2023 - 2024 en hún verður kynnt á aðalfundi Félags eldri borgara á Akureyri þann 20. mars.
Frístundaakstur fyrir eldra fólk
Málsnúmer 2024010789Lagt fram bréf frá stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og fulltrúa EBAK í öldungaráði um frístundastrætó milli Birtu og Sölku.
Stjórn Félags eldri borgara á Akureyri (EBAK) og öldungaráð Akureyrarbæjar beina því til bæjaryfirvalda að komið verði á tilraunaverkefni með frístundastrætó milli Birtu og Sölku.
Frístundaferðir af þessu tagi hafa verið í umræðunni hjá EBAK í nokkur ár. Margir komast ekki inn í venjulega fólksflutningabíla (rútur) nema e.t.v. með aðstoð og ekki heldur inn í stærri einkabíla.
Margir fara milli félagsmiðstöðvanna í einkabílum en bílastæði eru mjög takmörkuð á báðum stöðum. Frístundastrætó ætti að fækka þeim ferðum og er í það takt við óskir bæjaryfirvalda um minni umferðarþunga á götunum og hlutfallslega fækkun ökutækja.
Oft þyrfti að hafa aukastrætisvagna á álagstímum og svo hefur frístundastrætó vegna íþróttaæfinga skólafólks verið í umræðunni um nokkra hríð. Þessar ferðir ættu því að bæta nýtingu þeirra vagna.
Samanburður á gjaldskrá milli sveitarfélaga
Málsnúmer 2024030750Lagður fram til umræðu samanburður milli sveitarfélaga á gjaldskrá tengdri eldra fólki.
Öldungaráð - önnur mál
Málsnúmer 2022100342Umræður um önnur mál.