Velferðarráð - 1388
- Kl. 14:00 - 16:05
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1388
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Ingólfur Örn Helgasonfundarritari
Ráðning sviðsstjóra velferðarsviðs
Málsnúmer 2024060845Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar og Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra mættu á fundinn í forföllum bæjarstjóra og fóru yfir ráðningarferlið. Kynnt var niðurstaða bæjarstjóra um tillögu að ráðningu í starf sviðsstjóra velferðarsviðs.
Karólína Gunnarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.Velferðarráð samþykkir að bæjarstjóri gangi til samninga við Karólínu Gunnardóttur sem sviðsstjóra velferðarsviðs.
Vegna svæðisbundinna farsældaráða - tillaga frá mennta- og barnamálaráðuneyti
Málsnúmer 2024051346SSNE óskar eftir heimild frá sveitarfélögum til að hefja vinnu við að gera drög að samningi við ríkið um svæðisbundið farsældaráð fyrir Norðurland eystra.
Velferðarráð felur SSNE að vinna málið áfram.
NPA - tímagjald 2024
Málsnúmer 2024060284Lögð fram til samþykktar hækkun á tímagjaldi í NPA þjónustu.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Velferðaráð samþykkir framlag að tillögu að breytingu á tímagjaldi NPA.
Viðauki vegna NPA 2024
Málsnúmer 2024060655ALagt fram minnisblað dagsett 12. júní 2024 um þörf á auknu fjármagni vegna NPA samninga og notendasamninga.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Viðauki vegna þjónustu við börn
Málsnúmer 2024060616Lögð fram beiðni um viðauka vegna þjónustu við börn.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður og Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.Framkvæmdaáætlun velferðarsviðs 2024 - 2028
Málsnúmer 2021090113Lögð fram til kynningar drög að framkvæmda- og viðhaldsáætlun velferðarsviðs.
Framkvæmdaáætlun velferðarsviðs 2024 - 2028
Málsnúmer 2021090113Lagt fram minnisblað dagsett 12. júní 2024 um framtíðar uppbyggingu á húsnæðinu í þjónustukjarnanum í Þrastarlundi.
Kristinn Már Torfason forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð óskar eftir að umhverfis- og mannvirkjasvið fari í hugmyndavinnu um framtíð húsnæðis Þrastalundar í samvinnu við starfsfólk velferðasviðs.
Ársskýrsla velferðarsviðs 2023
Málsnúmer 2024010416Ársskýrsla velferðarsviðs fyrir árið 2023 lögð fram til kynningar.
Í dag sat Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri sinn síðasta velferðarráðsfund en hún lætur af störfum 15. júní eftir 40 ár í starfi hjá Akureyrarbæ. Velferðarráð þakkar Guðrúnu fyrir samstarfið og gott starf í þágu bæjarins ásamt því sem það óskar henni velfarnaðar.