Velferðarráð - 1341
- Kl. 15:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1341
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Hermann Ingi Arason
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
Stefnumótun í forvörnum
Málsnúmer 2017030584Kristinn Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs og Alfa Aradóttir deildarstjóri forvarna- og æskulýðsmála sátu fundinn undir þessum lið og gerðu grein fyrir úttekt á forvarnamálum hjá Akureyrarbæ sem unnin var af RHA að beiðni samfélagssviðs.
Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021
Málsnúmer 2021023280Lögð fram skýrsla vinnuhóps um framtíðaruppbyggingu húsnæðismála í málaflokki fatlaðra dagsett 23. júní 2021.
Velferðarráð lýsir yfir ánægju sinni með skýrsluna sem gefur greinagóðar upplýsingar um stöðu mála varðandi það húsnæði sem er í notkun í málaflokki fatlaðs fólks. Enn fremur dregur skýrslan fram þörf á uppbyggingu búsetuúrræða á næstu árum og verkefni eru sett upp í forgangsröð.
Velferðarráð er sammála forgangsröðinni í skýrslunni og leggur til að farið verði sem fyrst í breytingar á Hafnarstræti 16.
Málinu er vísað til bæjarráðs.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2021
Málsnúmer 2021031922Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur velferðarsviðs fyrstu sex mánuði ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.Fjárhagsaðstoð 2021
Málsnúmer 2021031923Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu sex mánuði ársins 2021.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð - starfs- og fjárhagsáætlun 2022
Málsnúmer 2021080521Umræða um gerð fjárhagsáætlunar sem er fram undan fyrir árið 2022.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.