Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 572
28.01.2016
Hlusta
- Kl. 13:00 - 13:45
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 572
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Þórunnarstræti 99 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2012121197Erindi dagsett 19. janúar 2016 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af kjallara Þórunnarstrætis 99, er varðar loftræsiklefa og ræstingaraðstöðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Viðburðir - götu- og torgsala 2016
Málsnúmer 2015120155Lagður fram tölvupóstur Guðröðar Hákonarsonar dagsettur 27. janúar 2016 þar sem hann f.h. Hildibrand slf., kt. 431012-0490, óskar eftir að fundinn verði staðsetning fyrir grillbíl í miðbæ Akureyrar.
Skipulagsstjóri vísar afgreiðslu erindisins til skipulagsnefndar.