Skólanefnd - 6
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Sigríður María Hammer
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Sædís Gunnarsdóttir
- Gerður Jónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Narfasonáheyrnarfulltrúi
- Ingibjörg Salóme Egilsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- fulltrúi skólastjóra
- Jóhannes Gunnar Bjarnasonfulltrúi grunnskólakennara
- Vilborg Þórarinsdóttirfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Kristlaug Þ Svavarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Helga María Harðardóttirfulltrúi leikskólakennara
- Benedikt Ármannssonfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Viðhaldsáætlun FAK 2012 - leik- og grunnskólar
Málsnúmer 2012030168Óskar Gísli Sveinsson verkefnastjóri viðhaldsverkefna hjá FAK og Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri mættu á fundinn og fóru yfir viðhaldsáætlun ársins 2012 í skólum Akureyrarbæjar.

Stjórnkerfi skóla Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2010040041Fyrir fundinn voru lagðar tillögur stýrihóps um stjórnkerfi skóla Akureyrarbæjar. Tillögurnar fela meðal annars í sér að heildstæðir grunnskólar með 400-500 nemendum á aldrinum 6-16 ára verði festir í sessi, unnið verði að sameiningu leikskóla þannig að á hverjum þeirra verði 90-150 börn, hvatt verði til aukinnar teymisvinnu kennara í öllum skólum bæjarins og dreifstýring verði aukin í leikskólum til samræmis við það sem er í grunnskólum. Markmið tillagnanna er að efla faglegt starf innan skóla Akureyrarbæjar.\nTillögurnar eru aðgengilegar á heimasíðu skóladeildar http://skoladeild.akureyri.is

Skólanefnd samþykkir að fresta afgreiðslu á tillögunum til næsta fundar svo tækifæri gefist til frekari skoðunar, kynningar og umræðu.

Nemendaspá 2013-2018
Málsnúmer 2012030022Fyrir fundinn voru lögð til kynningar og umræðu, drög að nemendaspá 2013-2018 fyrir leikskóla.

Fjölskyldustefna Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2008080068Jóhannes Gunnar Bjarnason og Kristlaug Þ. Svavarsdóttir yfirgáfu fundinn kl. 15:55 og Vilborg Þórarinsdóttir kl. 16:07.$line$$line$
Á síðasta fundi skólanefndar var að ósk Önnu Sjafnar Jónasdóttur L-lista opnuð umræða innan skólanefndar um endurskoðun fjölskyldustefnunnar. \nÁ fundinum var haldið áfram að ræða málin frá ýmsum hliðum og komu margar hugmyndir fram, sem verða ræddar áfram.

Almenn kennsla - úthlutun 2012
Málsnúmer 2012030078Fyrir fundinn var lögð tillaga að skiptingu kennslustunda til almennrar kennslu og sérkennslu milli skólanna. Fram kom á fundinum að ekki liggur enn endanlega fyrir hvernig sérkennsla dreifist þar sem ekki er komin niðurstaða í hvar nokkrir nemendur sem þurfa mikinn stuðning verða staðsettir.\nFyrir liggur að unnið er í samræmi við samþykkt viðmið um úthlutun.

Skólanefnd felur fræðslustjóra að ljúka skiptingu kennslustundanna milli skóla í samráði við skólastjóra.