Félagsmálaráð - 1162
- Kl. 14:00 - 16:00
- Hlíð - samkomusalur
- Fundur nr. 1162
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Sif Sigurðardóttir
- Valur Sæmundsson
- Guðlaug Kristinsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Margrét Alfreðsdóttirfundarritari
Fjárhagserindi 2013 - áfrýjanir
Málsnúmer 2013010061Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

Dagvist aldraðra - taka til skoðunar og umfjöllunar núverandi skipulag og húsnæði dagþjónustunnar sem rekin er á tveimur stöðum
Málsnúmer 2013040039Skoða samvinnu og/eða samþættingu þjónustunnar og þær breytingar sem hafa orðið á henni undanfarin ár. Lögð til grundvallar vinna starfshóps frá 2007 um sama málefni.

Félagsmálaráð samþykkir að skipa starfshóp til að skoða skipulag og húsnæði dagþjónustu á Akureyri. Hópinn skipa Halldór Gunnarsson framkvæmdastjóri ÖA, Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri, Friðný Sigurðardóttir þjónustustjóri og Olga Ásrún Stefánsdóttir forstöðumaður. Hópurinn skal skila niðurstöðum 31. maí 2013.

Reglur um úthlutun leiguíbúða Akureyrarbæjar 2013
Málsnúmer 2013040041Lögð fram drög að breytingum á reglum um úthlutun leiguíbúða þar sem lagt er til að reglur og verklagsreglur verið sameinaðar. Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð samþykkir framkomnar breytingar á reglum um úthlutun leiguíbúða.

Velferðarstefna 2010-2014
Málsnúmer 2012010098Rætt um stöðu verkefnisins og mögulegar leiðir til þess að koma verkefninu áfram. Lagt fram minnisblað um málið.

Félagsmálaráð samþykkir að fresta málinu til næsta fundar.

ÖA - velferð og tækni, velferðartækni
Málsnúmer 2013010215Samherji styrkir ÖA.\nMiðvikudaginn 27. mars 2013 veitti Samherji styrki til íþrótta- og tómstundastarfs og annarra samfélagsverkefna á Akureyri. Af því tilefni veitti Samherji fimm milljón króna styrk í verkefnið Velferð og tækni á Öldrunarheimilum Akureyrar. Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður Samherjasjóðsins afhenti styrkinn við athöfn sem fram fór í KA heimilinu. Hún gat þess í ávarpi sínu að með verkefninu væri stuðlað að bættri þjónustu og lífsgæðum íbúa á öldrunarheimilunum. Við afhendingu þessa rausnarlega styrks flutti framkvæmdastjóri ÖA góðar óskir og þakkir til stjórnenda og starfsfólks Samherja frá íbúum og starfsfólki ÖA.

Félagsmálaráð tekur undir þakkir framkvæmdastjóra.