Bæjarráð - 3389
- Kl. 08:00 - 11:35
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3389
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Oddur Helgi Halldórsson
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Sigurður Guðmundsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Logi Már Einarssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Þróunarstjóri
Málsnúmer 2013110068Karl Frímannsson þróunarstjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið og fór yfir stöðu verkefna.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2014-2017
Málsnúmer 2013050198Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.\nGunnar Gíslason fræðslustjóri og Preben Jón Pétursson formaður skólanefndar mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið.

Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013-2016 - viðauki
Málsnúmer 2012060047Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista vék af fundi kl. 10:30.
Lagður fram viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013.

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013 og vísar honum til bæjarstjórnar til samþykktar.

Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerðir 2013
Málsnúmer 2013010076Lögð fram til kynningar fundargerð 68. fundar hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 5. nóvember 2013.\nFundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi/fundargerdir-2012-2013

Bæjarráð vísar fundargerðinni til skipulagsnefndar.

Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir
Málsnúmer 2010020035Lögð fram fundargerð 73. fundar hverfisráðs Hríseyjar dags. 5. nóvember 2013. Fundargerðina má finna á slóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

Fundargerðin lögð fram til kynningar í bæjarráði.

Snorraverkefnið - styrkbeiðni 2014
Málsnúmer 2013110065Erindi dags. 4. nóvember 2013 frá Ástrós Signýjardóttur f.h. stjórnar Snorrasjóðs þar sem óskað er eftir stuðningi frá Akureyrarbæ við verkefnið árið 2014.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

Eyþing - fulltrúaráð
Málsnúmer 2013110069Erindi dags. 4. nóvember 2013 frá Eyþingi þar sem fram kemur að á aðalfundi Eyþings 27. og 28. september sl. hafi verið samþykkt tillaga að breytingum á lögum Eyþings sem felur meðal annars í sér að komið verði á fót fulltrúaráði. Akureyrarbær skal skipa 5 fulltrúa í ráðið.
Bæjarráð skipar þau Höllu Björk Reynisdóttir, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Sigurð Guðmundsson, Ólaf Jónsson og Hlín Bolladóttur í fulltrúaráðið.Til vara eru þau Logi Már Einarsson, Tryggvi Þór Gunnarsson, Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Inda Björk Gunnarsdóttir.