Vefur í vinnslu
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Nýr vefur Akureyrarbæjar er í vinnslu. Vinsamlegast beinið öllum athugasemdum til vefstjórnar, vefstjorn@akureyri.is
Kynning á framkvæmdum á vegum umhverfis- og mannvirkjasviðs á árinu 2025.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda, Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar, Kristján Snorrason verkefnastjóri nýframkvæmda, Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda og Tómas Björn Hauksson verkefnastjóri nýframkvæmda og viðhalds gatna sátu fundinn undir þessum lið.
Lagt fram minnisblað dagsett 26. febrúar 2025 varðandi endurnýjun á bakvaktarbíl Slökkviliðs Akureyrar.
Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir tillögu slökkviliðsstjóra um kaup á bakvaktarbíl.
Kynnt verkefni um hreinsunarátak á iðnaðar- og athafnalóðum í samstarfi við skipulagssvið.
Steinunn Karlsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála og Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð bindur miklar vonir við að hreinsunarátak á iðnaðar- og athafnalóðum muni skila markverðum árangri og hvetur öll sem málið varðar til þátttöku.
Lagt fram minnisblað dagsett 14. mars 2025 um nýframkvæmdir í umhverfismálum árið 2025.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sat fundinn undir þessum lið.
Lögð fram skýrsla um rekstur umhverfis- og mannvirkjasviðs árið 2024.
Lögð fram fundargerð óshólmanefndar dagsett 4. mars 2025.
Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi V-lista óskar bókað:
Ólafur Kjartansson hvetur til þess að umhverfissvið gangist fyrir því að unnið verði að faglegri lausn á varðveislu lífríkisins á Kjarnaflæðunum. Byggt verði á gögnum úr tiltækum náttúruskráningum svo sem fuglatalningum og lýsingum á gróðurfari svæðisins.