Umhverfis- og mannvirkjaráð - 177
- Kl. 08:15 - 10:41
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 177
Nefndarmenn
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttirformaður
- Bjarney Sigurðardóttirvaraformaður
- Þórhallur Harðarson
- Ingimar Eydal
- Hilda Jana Gísladóttir
- Halla Birgisdóttir Ottesenáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
- Íris Ósk Sverrisdóttiráheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
1. Þórssvæðið - knattspyrnuvöllur
Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 24. janúar 2025 varðandi framkvæmdir við gervigrasvöll á félagssvæði Þórs.
2. Lyfta - Vallartún og Eiðsvallargata
Lögð fram minnisblöð dagsett í nóvember 2024 varðandi uppsetningu á lyftum við tvö fjölbýlishús í eigu Akureyrarbæjar. Framkvæmdin hefur verið kynnt notendum, auk þess sem styrkur hefur fengist frá Framkvæmdasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Framkvæmdin verður einnig kynnt í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.3. Yfirborðsmerkingar - útboð
Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi nýtingu framlengingarákvæðis á samningi um yfirborðsmerkingar á Akureyri.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að nýta framlengingarákvæði samningsins og framlengja samninginn um eitt ár.
4. Hjólaskýli - kynning
Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi uppsetningu á hjólaskýlum fyrir starfsfólk við Klappir leikskóla, Glerárskóla og Ráðhús Akureyrarbæjar.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.5. Leikskóli í Hagahverfi
Kynning á leikskólanum í Hagahverfi frá Birgi Teitssyni arkitekt frá ARKÍS arkitektum.
Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.6. Malbikunarstöð UM - asfalt
Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi kaup á asfalti/tjöru af Colas á árinu 2025.
Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að semja við Colas um kaup á asfalti fyrir árið 2025 og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs að skrifa undir samning þess efnis.
7. Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2024-2025
Lagt fram minnisblað dagsett 27. janúar 2025 varðandi sölu á eldri tækjum umhverfismiðstöðvar.
Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka hæsta tilboði í hvert tæki.
Caterpillar 163H AWD
16.616.000 kr. Grjótverk ehf.
HAMM DV70TV Valtari
3.112.400 kr. Rúko hf.
Wirtgen W50DC malbiksfræsari
2.850.000 kr. Rúko hf.
Scania T92 malbikshitakassi
4.650.000 kr. Klæðning ehf.8. Hleðslustöðvar á Akureyri - útboð
Lagt fram minnisblað dagsett 24. janúar 2025 varðandi drög að staðsetningum fyrir hleðslustöðvar í landi Akureyrarbæjar sem hluti af undirbúningi útboðs um rekstur stöðvanna.