Bæjarráð - 3822
- Kl. 08:15 - 10:32
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3822
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttirvaraformaður
- Hlynur Jóhannsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Brynjólfur Ingvarssonáheyrnarfulltrúi
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirbæjarlögmaður ritaði fundargerð
- Olga Margrét Kristínard. Cilialögfræðingur
Bæjarsjóður Akureyrarbæjar - yfirlit um rekstur 2023
Málsnúmer 2023050347Lagt fram til kynningar átta mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Þá sátu bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Gunnar Már Gunnarsson undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2024-2027
Málsnúmer 2023020943Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Þá sátu bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Gunnar Már Gunnarsson undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.Fjárhagsáætlun Þjónustu og skipulagssviðs - 2024
Málsnúmer 2023090427Lögð fram drög að fjárhags- og starfsáætlun þjónustu- og skipulagssviðs fyrir skipulags- og byggingarmál og atvinnu- og menningarmál, ásamt starfsáætlun þjónustu og þróunar fyrir árið 2024.
Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs, Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra þjónustu- og skipulagssviðs að vinna málið áfram.
Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 2023061032Lögð fram drög að fjárhags- og starfsáætlun velferðarráðs fyrir árið 2024.
Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs, Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna málið áfram.
Eigendastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2023030902Liður 7 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 28. september 2023:
Skipun vinnuhóps um gerð eigendastefnu fyrir B-hluta fyrirtæki Akureyrarbæjar.
Bæjarráð samþykkir að hefja vinnu við gerð eigendastefnu og felur bæjarstjóra að útbúa erindisbréf fyrir vinnuhópinn. Eftirtaldir aðilar eru skipaðir í vinnuhópinn; Hlynur Jóhannsson M-lista, Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista, Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista, Gunnar Már Gunnarsson B-lista, Hilda Jana Gísladóttir S-lista, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra.
Á fundinum er lagt fram erindisbréf fyrir vinnuhópinn.
Hulda Sif Hermansdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir erindisbréfið.
Umhverfis- og loftslagsstefna Akureyrarbæjar 2022-2030
Málsnúmer 2022060764Lagður fram nýr sjötti kafli í umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar. Umhverfis- og loftslagsstefnan var samþykkt í maí 2022 en bæjarstjórn fól síðan umhverfis- og mannvirkjasviði að bæta við kafla/áherslum um umgengni og þrifnað utanhúss.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að bæta framlögðum kafla við umhverfis- og loftslagsstefnuna með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar málinu til umræðu og samþykktar í bæjarstjórn.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2023
Málsnúmer 2023011346Lögð fram til kynningar fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 29. september 2023.
Fylgiskjöl