Stjórn Hlíðarfjalls - 17
- Kl. 10:30 - 12:20
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 17
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Andri Teitsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Brynjar Helgi Ásgeirssonforstöðumaður Hlíðarfjalls
Hlíðarfjall - fjárhagsáætlun
Málsnúmer 2020090427Á fundi stjórnar þann 1. september sl. var starfsmönnum falið að forgangsraða endurnýjun á búnaði og leggja fram áætlun um fjármögnun.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að óska eftir viðauka að upphæð kr. 7.000.000 sem yrði tekinn af rekstri ársins 2021 og færður yfir á eignfærða fjárfestingu.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Hlíðarfjalls 2022
Málsnúmer 2021090812Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Hlíðarfjalls fyrir árið 2022.
Stjórn Hlíðarfjalls felur starfsmönnum að bjóða út rekstur skíðaleigunnar.
Frekari umræðu um starfs- og fjárhagsáætlun frestað til næsta fundar.Hlíðarfjall - gjaldskrá
Málsnúmer 2020090392Tillaga að gjaldskrá 2022 lögð fram til kynningar og umræðu.
Afgreiðslu er frestað til næsta fundar.
Hlíðarfjall - útboð á veitingarekstri
Málsnúmer 2020120222Til umræðu útboð á veitingarekstri í Hlíðarfjalli veturinn 2021 - 2022.
Stjórn Hlíðarfjalls felur starfsmönnum að uppfæra útboðsgögn út frá umræðum á fundinum og setja útboð í ferli.
Hlíðarfjall - rekstur skíða- og brettaskóla
Málsnúmer 2020120221Til umræðu úthýsing á rekstri skíða- og brettaskóla veturinn 2021 - 2022.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að auglýst verði eftir aðilum til að sjá um skíða- og brettaskóla Hlíðarfjalls.
Sumaropnun í Hlíðarfjalli
Málsnúmer 2020050264Lagðar fram til kynningar aðsóknartölur að Hlíðarfjalli sumarið 2021.
Fylgiskjöl