Fræðsluráð - 3
- Kl. 13:30 - 15:50
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 3
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Anna Rósa Magnúsdóttir
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Ytra mat í grunnskólum 2016
Málsnúmer 2017010569Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri Brekkuskóla kynnti niðurstöður ytra mats mennta- og menningarmálaráðuneytis á starfsemi skólans sem fram fór haustið 2015.
Fræðsluráð þakkar Jóhönnu kærlega fyrir kynninguna og bendir á að úttektin í heild sinni er á heimasíðu Brekkuskóla.
Ytra mat í grunnskólum 2016
Málsnúmer 2017010569Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Oddeyrarskóla mætti til fundar kl. 13:55. <br />
Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Oddeyrarskóla kynnti niðurstöður ytra mats mennta- og menningarmálaráðuneytis á starfsemi skólans sem fram fór haustið 2015.
Fræðsluráð þakkar Kristínu kærlega fyrir kynninguna og bendir á að úttektin í heild sinni er á heimasíðu Oddeyrarskóla.
Kristín vék af fundi kl. 14:45.
Samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnenda
Málsnúmer 2017010572Samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnenda hefur skilað skýrslu. Skýrslan var lögð fram til kynningar að beiðni samstarfsráðsins.
Samstarfshópur um framtíðarsýn fyrir skólastarf á Glerárskólareit
Málsnúmer 2017010573Breytingar hafa orðið á hópnum sem formlega var settur á laggirnar í febrúar 2015.
Í stað Bjarka Ármanns Oddssonar fyrrverandi formanns skólanefndar kemur Dagbjört Elín Pálsdóttir núverandi formaður fræðsluráðs.
Samstarfshópurinn er því þannig skipaður:
Dagbjört Elín Pálsdóttir fulltrúi S-lista og formaður fræðsluráðs
Preben Jón Pétursson fulltrúi Æ-lista
Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Fulltrúi umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi og Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri, starfsmenn á fræðslusviði eru starfsmenn hópsins.
Rekstur mötuneyta leik- og grunnskóla 2016
Málsnúmer 2017020006Árni Konráð Bjarnason rekstarstjóri á fræðslusviði fór yfir rekstur skólamötuneyta leik- og grunnskóla árið 2016.
Kjarasamningar grunnskólakennara
Málsnúmer 2017010147Lagt er til að ráðinn verði verkefnisstjóri til að stýra framkvæmd og úrvinnslu vegna bókunar í kjarasamningi kennara.
Fræðsluráð samþykkir ráðningu verkefnisstjóra og felur sviðsstjóra fræðslusviðs frekari úrvinnslu á málinu.