Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 286
- Kl. 09:30 - 11:10
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 286
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Eiríkur Jónsson
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jón Orri Guðjónsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Lögð fram stöðuskýrsla 1 dagsett 23. október 2016 ásamt verksamningum vegna verksins.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir framlagða samninga og felur framkvæmdastjóra að vinna áfram að málinu.
Þórssvæði - slys í áhorfendastúku
Málsnúmer 2014110171Lagður fram til kynningar dómur Héraðsdóms Reykjavíkur dagsettur 17. október 2016 í máli Harjit Delay gegn Fasteignum Akureyrarbæjar vegna falls hans úr stúku á Þórsvellinum 14. september 2014.
Fasteignir Akureyrarbæjar eru sýknaðar af kröfum stefnanda.Fjárhagsáætlun 2017 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016080126Ingibjörg Ólöf Isaksen B-lista mætti á fundinn kl. 10:00 við upphaf 3ja dagskrárliðar. <br />
Unnið áfram að nýframkvæmdaáætlun áranna 2017-2019 hjá Fasteignum Akureyrarbæjar.
Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings
Málsnúmer 2015030205Lögð fram niðurstaða dómnefndar dagsett 21. október 2016 um hönnunartillögur af Nökkvasvæðinu.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir niðurstöður dómnefndar að velja tillögu AVH ehf til frekari útfærslu og vísar málinu til umræðu í íþróttaráði.
Eiríkur Jónsson S-lista og Jón Orri Guðjónsson D-lista sátu hjá við atkvæðagreiðslu.