Skólanefnd - 27
- Kl. 14:00 - 17:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 27
Nefndarmenn
- Sigurveig Bergsteinsdóttirformaður
- Preben Jón Pétursson
- Sigrún Björk Sigurðardóttir
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Logi Már Einarsson
- Hrafnhildur Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- fulltrúi skólastjóra
- fulltrúi grunnskólakennara
- fulltrúi leikskólakennara
- fulltrúi foreldra leikskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Fundaáætlun 2011
Málsnúmer 2010120088Fyrir fundinn var lögð tillaga að fundaáætlun skólanefndar fyrir árið 2011.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.

Gjaldskrá leikskóla
Málsnúmer 2010120087Fyrir fundinn var lagður til kynningar samanburður á gjaldskrá leikskóla á Akureyri við gjaldskrár nágrannasveitarfélaga og stærri sveitarfélaganna í landinu.

Lundarskóli - forvarnir og umferðarfræðsla í samvinnu við lögreglu
Málsnúmer 2010120061Erindi dags. 6. desember 2010 frá skólaráði Lundarskóla til lögreglustjórans á Akureyri, þar sem skólaráðið lýsir vonbrigðum sínum með þá ákvörðun lögreglunnar á Akureyri að hætta að sinna forvarnastarfi sem sinnt hefur verið í mörg ár og snúið að umferðarfræðslu, vímuvörnum og afleiðingum afbrota og ofbeldis.

Skólanefnd tekur heils hugar undir áhyggjur og vonbrigði skólaráðs Lundarskóla og óskar eftir því að bæjarráð taki málið til skoðunar.

Stjórnkerfi skóla Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2010040041Fyrir fundinn var lögð ályktun fundar Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla í 6. svæðadeild, sem haldinn var 30. nóvember 2010. Þar kemur meðal annars fram að leikskólakennarar hvetja til þess að faglegar og rekstrarlegar forsendur liggi fyrir þegar ákvörðun verður tekin að lokinni úttekt á stjórnkerfi skóla, samfélaginu til heilla.\nÞá var einnig farið yfir störf stýrihópsins frá síðasta fundi skólanefndar.

Skólanefnd þakkar fyrir þær ábendingar sem fram koma í ályktuninni og tekur undir mikilvægi þess að unnið sé faglega að verkefninu og ákvarðanatöku í kjölfar þess.

Yfirlit yfir skyldur og ábyrgð skólanefnda
Málsnúmer 2010110085Erindi dags. 16. nóvember 2010 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem vakin er athygli á tveimur ritum sem verkefnisstjóri í skólamálum, Björk Ólafsdóttir, hefur unnið og aðgengileg eru á upplýsingavef Sambandsins. Rit þessi eru Yfirlit yfir skyldur og ábyrgð skólanefnda og Leiðbeiningar og viðmið fyrir sveitarfélög í tengslum við innra mat grunnskóla.

Skólaskýrsla - 2010
Málsnúmer 2010120063Út er komin skólaskýrsla 2010 sem Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman. Þar er að finna ýmsar tölulegar upplýsingar um leik-, grunn- og tónlistarskóla í sveitarfélögum. Skólaskýrslan var lögð fram til kynningar.