Velferðarráð - 1385
- Kl. 14:00 - 16:25
- Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
- Fundur nr. 1385
Nefndarmenn
- Hulda Elma Eysteinsdóttirformaður
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Hólmgeir Karlsson
- Guðbjörg Anna Björnsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Elsa María Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Tinna Guðmundsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Ingólfur Örn Helgasonfundarritari
Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2024
Málsnúmer 2024040339Fundurinn hófst á heimsókn í Plastiðjuna Bjarg-Iðjulund, Furuvöllun 1.
Sigurrós Tryggvadóttir iðjuþjálfi tók á móti ráðinu og sýndi staðinn.Velferðarráð þakkar fyrir kynningu á starfi PBI og góðar móttökur.
Teymi um vinnu og virkni
Málsnúmer 2024040328Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri kynnti nýtt teymi á velferðarsviði sem er um vinnu og virkni.
Viðauki í stoðþjónustu 2024
Málsnúmer 2024031388Lögð fram beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun stoðþjónustu, NPA og notendasamninga og þjónustukaup í sameiginlegum kostnaði í málaflokki fatlað fólks um upphæð kr. 93.300.000 vegna ársins 2024.
Elfa Björk Gylfadóttir forstöðumaður, Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur og Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.Lagt fram og vísað til seinni umræðu.
Velferðartækni á velferðarsviði 2024
Málsnúmer 2024031247Lagt fram minnisblað dagsett 10. apríl 2024 um stöðu innleiðingar á velferðartækni á velferðarsviði.
Velferðarsvið - trúnaðarmál
Málsnúmer 2024040336Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fóru yfir trúnaðarmálefni.