Umhverfis- og mannvirkjaráð - 73
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 73
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
SVA - leiðakerfi 2020
Málsnúmer 2020020042Lagt fyrir erindisbréf um skipun stýrihóps um gerð nýs leiðakerfis.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að skipa Unnar Jónsson S-lista og Jönu Salóme I. Jósepsdóttur V-lista í stýrihópinn.
Erindi til Akureyrarbæjar vegna sviðsvagns
Málsnúmer 2020020554Tekin fyrir beiðni um kaup á sviðsvagni í eigu bæjarins.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að sviðsvagninn verði auglýstur til sölu og felur starfsmönnum umhverfis- og mannvirkjasviðs að ganga frá sölunni.
Úrtök við bílastæði - reglur
Málsnúmer 2020020502Lagt fram minnisblað dagsett 20. febrúar 2020 varðandi breyttar vinnureglur við umsókn og framkvæmd úrtaka.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir breytingarnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs til afgreiðslu.
Glerárdalur - lokun urðunarstaðar
Málsnúmer 2011070010Lagt fram minnisblað dagsett 10. janúar 2020 vegna frágangs við lokun urðunarstaðar á Glerárdal.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að móta áætlun, meta kostnað og leggja til aðgerðaráætlun við að ná eins metra þykkt á jarðveg ofan á urðunarstað í samræmi við kröfur Umhverfisstofnunar.
Glerárdalur - leyfi fyrir þyrluskíðaferðum í fólkvanginum
Málsnúmer 2016120037Tekin fyrir umsókn frá Bergmönnum ehf. dagsett 13. febrúar 2020, um leyfi til þyrluflugs innan fólkvangsins á Glerárdal á tímabilinu 1. febrúar til 30. júní árin 2020-2024, til vara er sótt um leyfi á sama tímabili til eins árs, það er 2020.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni frá Bergmönnum ehf. um leyfi fyrir þyrluskíðaferðum á Glerárdal. Ráðið gerir fyrirvara um að farið verði eftir reglugerðum er gilda um vatnsverndarsvæði og að leyfið verði veitt tímabundið til eins árs. Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar í framhaldinu eftir gögnum um umfang þyrluflugs á svæðinu síðastliðin þrjú ár og upplýsingar um lendingarstaði. Ráðið hvetur til þess að þyrluflugið á svæðinu verði kolefnisjafnað.
Ólafur Kjartansson V-lista óskar bókað:
Þyrluskíðun á Glerárdal er viðbót sem gengur gegn upphaflegum markmiðum í friðlýsingu Glerárdals sem og loftlagsstefnu bæjarins.Aksturssvæði við Hlíðarfjallsveg - umgengni vélhjólamanna KKA
Málsnúmer 2018120029Tekin fyrir staðan á umgengni á svæðinu.
Umhverfis- og mannvirkjaráð ítrekar bókun ráðsins frá 7. júní 2019 og tekur undir bókun frá fundi skipulagsráðs þann 10. júlí 2019.
Umferðaröryggismál - gönguþveranir
Málsnúmer 2020020504Kynntar fyrir ráðinu fyrirætlanir fyrir árið 2020 um endurbætur á gönguþverunum.
Lundarskóli - þak
Málsnúmer 2020020505Lagt fram minnisblað dagsett 19. febrúar 2020 varðandi viðhaldsþörf á þaki Lundarskóla.
Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals
Málsnúmer 2018050021Lagt fram minnisblað dagsett 21. febrúar 2020 til upplýsingar um stöðu verkefnisins.
Búnaðarkaup UMSA 2020
Málsnúmer 2020020503Teknar fyrir beiðnir til búnaðarkaupa frá MAk og frístundaráði dagsettar 18. febrúar 2020.
Umhverfis og mannvirkjaráð samþykkir fyrirliggjandi beiðnir til búnaðarkaupa.
Bílastæðasjóður - gjaldtaka
Málsnúmer 2019050628Lagt fram minnisblað dagsett 18. febrúar 2020 varðandi fyrirhugaða gjaldtöku á bílastæðum.
Starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs 2020
Málsnúmer 2020010314Starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2020 lagðar fyrir ráðið til umræðu.
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs samþykkir starfsáætlanir sviðsins.
Berglind Bergvinsdóttir M-lista og Sigurjón Jóhannesson D-lista sátu hjá.Stöðuskýrslur rekstrar Umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019
Málsnúmer 2019030350Stöðuskýrslur rekstrar umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2019 lagðar fyrir ráðið til umræðu.