Velferðarráð - 1321
- Kl. 14:00 - 16:06
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1321
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Hermann Ingi Arason
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Helga Guðrún Erlingsdóttirframkvæmdastjóri ÖA
- Karólína Gunnarsdóttirsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu
Málsnúmer 2020050662Lögð fram til kynningar gögn er varða undirbúning stjórnkerfisbreytinga í velferðarþjónustu.
Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fundinn undir þessum lið.Öldrunarþjónusta - biðlistar
Málsnúmer 2016020149Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Helga Guðrún Erlingsdóttir, lagði fram yfirlit um fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými í lok maí ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda á biðlista eftir dagþjálfun.
Umsóknir ÖA 2018-2020 - Framkvæmdasjóður aldraðra
Málsnúmer 2018100450Helga Guðrún Erlingsdóttir framkvæmdastjóri ÖA kynnti þrjú svarbréf dagsett 20. maí sl. frá Framkvæmdasjóði aldraðra þar sem samþykktar eru eftirfarandi styrkveitingar að upphæð alls kr. 5.395.166 vegna: 1. Endurnýjunar á raðhúsaíbúð kr. 2,4 milljónir í styrk en kostnaðaráætlun hljóðar upp á kr. 6 milljónir. 2. Endurnýjun á bjöllu- og símakerfi kr. 3 milljónir en kostnaðaráætlun hljóðar upp á kr. 7,5 milljónir. Þriðja umsóknin hlaut ekki stuðning og var hafnað, en þar var sótt um styrk vegna áframhaldandi breytinga á aðaleldhúsi.
Fylgiskjöl
Réttur til atvinnuleysisbóta og eða fjárhagsaðstoðar
Málsnúmer 2020050693Lagt fram til kynningar minnisblað vegna atvinnuleysisbóta og/eða fjárhagsaðstoðar dagsett 15. maí 2020.
Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.Aukið félagsstarf fullorðinna sumarið 2020 vegna COVID-19
Málsnúmer 2020050512Lagt fram til kynningar bréf frá félagsmálaráðuneyti varðandi stuðning við aukið félagsstarf fullorðinna sumarið 2020 á tímum COVID-19.
Stuðningur til að efla virkni vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu á tímum COVID-19
Málsnúmer 2020050513Lagt fram til kynningar bréf frá félagsmálaráðuneyti varðandi stuðning vegna tómstundastarfs barna í viðkvæmri stöðu á tímum COVID-19.
Styrkur vegna þjónustu við fatlað fólk sumarið 2020 vegna COVID-19
Málsnúmer 2020060094Sótt er um til félagsmálaráðuneytis vegna verkefnis sem snýr að aukinni félagslegri þátttöku fatlaðs fólks í sumar.
Beiðni um viðauka vegna búsetuþjónustu
Málsnúmer 2020050677Lögð er fyrir velferðarráð beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun. Lagt er til að hækka fjárhagsáætlun 102-5660 er nemur kr. 10.805.000.
Styrkir velferðarráðs - ýmsar upplýsingar
Málsnúmer 2019050563Farið yfir gildandi samninga og önnur gögn varðandi styrkveitingar velferðarráðs.