Stjórn Akureyrarstofu - 272
- Kl. 14:00 - 17:00
- Héraðsskjalasafnið á Akureyri
- Fundur nr. 272
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Finnur Sigurðsson
- Kristján Blær Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Stjórn Akureyrarstofu - samráðsfundir með forstöðumönnum
Málsnúmer 2018080020Lára Ágústa Ólafsdóttir forstöðumaður héraðsskjalasafnsins kynnti starfsemi safnsins.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir greinargóða kynningu.
Skýrsla um starfsemi Héraðsskjalasafnsins á Akureyri og starfsemi héraðsskjalasafna
Málsnúmer 2019010129Lára Ágústa Ólafsdóttir forstöðumaður héraðsskjalasafnsins fór yfir helstu atriði úr skýrslu um starfsemi Héraðsskjalasafnsins á Akureyri og starfsemi héraðsskjalasafna. Skýrslan var unnin af Þjóðskjalasafni Íslands.
Safnastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014110087Lögð fram tillaga undirbúningshóps að vinnuramma vegna mótunar nýrrar safnastefnu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagðan vinnuramma og tillögu að skipan verkefnastjórnar og felur deildarstjóra Akureyrarstofu að vinna málið áfram.
Íbúakort
Málsnúmer 2017090124Umræða um næstu skref varðandi innleiðingu á íbúakorti.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnun að vinna málið áfram út frá umræðu á fundinum.
Iðnaðarsafnið - beiðni um fjárstuðning
Málsnúmer 2018080050Erindi dagsett 7. desember 2018 frá Þorsteini E. Arnórssyni safnstjóra Iðnaðarsafnsins og Jónu Sigurlaugu Friðriksdóttur safnverði þar sem óskað er eftir áframhaldandi fjárstuðningi við rekstur Iðnaðarsafnsins. Erindið var áður á dagskrá fundar stjórnar þann 24. janúar sl.
Stjórn Akureyrarstofu getur ekki aukið við stuðning til Iðnaðarsafnsins umfram það sem gert er í dag. Vinna við gerð safnastefnu er nú að hefjast og mun stjórn Akureyrarstofu taka afstöðu til málefna Iðnaðarsafnsins þegar hún liggur fyrir í árslok.
Fundargerðir safnráðs Listasafnsins á Akureyri
Málsnúmer 2002040036Lögð fram til kynningar fundargerð safnsráðs Listasafnsins frá 12. febrúar 2019.
Fylgiskjöl
Lífið er LEIKfimi - áframhald á sýningu um Örn Inga Gíslason
Málsnúmer 2019020157Erindi dagsett 16. janúar 2019 frá Halldóru Arnardóttur, f.h. fjölskyldu Arnar Inga Gíslasonar, þar sem Akureyrarbæ eru boðin listaverk sem eftir hann liggja til láns. Hugmyndin er að gerður verði samningur milli Akureyrarbæjar og aðstandenda um að bærinn taki verkin til geymslu á sinn kostnað og að starfsfólki verði boðið að fá verk að láni til að hafa á skrifstofum og vinnurýmum.
Stjórn Akureyrarstofu tekur undir með safnráði Listasafnsins sem hafði tekið erindið til umfjöllunar á fundi sínum þann 12. febrúar sl. og getur ekki orðið við erindinu.
Þjónustukönnun Gallup 2018 - kynning í ráðum
Málsnúmer 2019020200Farið yfir niðurstöður úr könnun Gallup á viðhorfi íbúa til þjónustu sveitarfélaga.
Fylgiskjöl
Kynningaráætlanir sviða 2019
Málsnúmer 2019020253Lögð fram kynningaráætlun samfélagssviðs í samræmi við aðgerðaráætlun upplýsingastefnu Akureyrarbæjar.
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2019
Málsnúmer 2019020025Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit þeirra kostnaðarstöðva sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli af dagvinnu á kostnaðarstöðum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Velferðarstefna 2018-2023
Málsnúmer 2018081103Velferðarráð óskar eftir því að stjórn Akureyrarstofu geri tillögur til velferðarráðs að aðgerðaáætlun vegna þeirra verkefna í velferðarstefnu Akureyrarbæjar er heyra undir þeirra svið.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að vinna aðgerðaáætlun í samræmi við stefnuna.