Umhverfis- og mannvirkjaráð - 101
- Kl. 08:15 - 10:15
- Fjarfundur
- Fundur nr. 101
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Græni trefillinn - Hængsskógur
Málsnúmer 2021050262Lagður fram samningur við Lionsklúbbinn Hæng varðandi Hængsskóg inni á Glerárdal.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn. Jafnframt verði unnið að framtíðarsýn á skipulagi, plöntun og umhirðu á græna treflinum í heild.
Stígagerð á Glerárdal - erindi frá Súlum Vertical
Málsnúmer 2021050975Tekið fyrir bréf frá félagasamtökunum Súlum Vertical varðandi stígagerð á Glerárdal.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar fyrir þær ábendingar sem fram koma í bréfinu og verður tekið tillit til þeirra við áframhaldandi framkvæmdir.
Viðhald malbikaðra gatna 2021
Málsnúmer 2019030370Lagt fram minnisblað varðandi hvaða götur er áætlað að endurmalbika sumarið 2021. Áætlun gerir ráð fyrir 129 m.kr. Í málaflokknum, þar af er verið að úthluta um 80 m.kr. í yfirbræðslur, 15 m.kr. í holufyllingar og samanlagt 10 m.kr. í kantsteina og hraðahindranir, þá er haldið eftir um 20% í ófyrirséð viðhald.
Norðurgata 45 - sala
Málsnúmer 2021041494Lagður fram kaupsamningur varðandi sölu á Norðurgötu 45 e.h.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir söluna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.
Loftgæðamál 2021
Málsnúmer 2021011697Farið yfir loftgæðamál í fasteignum Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar fyrir kynninguna. Áfram verði haldið að fylgjast með loftgæðum í fasteignum Akureyrarbæjar eftir því sem tilefni er til.