Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 856
- Kl. 13:00 - 13:45
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 856
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Aðalstræti 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022030344Erindi dagsett 8. mars 2022 þar sem X 457 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 3 við Aðalstræti. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi 1. hæðar. Innkomnar teikningar eftir Guðjón Þóri Sigfússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Vörðutún 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022030454Erindi dagsett 11. mars 2022 þar sem Birgir Ágústsson fyrir hönd Sigurðar J. Ringsted, Kristínar Mjallar Benediktsdóttur og Benedikts Jóhannssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 10 við Vörðutún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Freyjunes 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020090573Erindi dagsett 17. janúar 2022 þar sem Ragnar Auðunn Birgisson fyrir hönd Bygma Ísland sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 1 við Freyjunes. Innkomin ný gögn 14. mars 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gleráreyrar 1, rými 9-10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Nova og Nespresso
Málsnúmer 2021120527Erindi dagsett 16. mars 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á rýmum 9 og 10 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að innrétta rýmin fyrir verslanir Nespresso og Nova. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Gleráreyrar 1 - rými 74, 75 og hjólageymsla
Málsnúmer 2021120051Erindi dagsett 16. mars 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugaðar smávægilegar breytingar á hjólageymslu fyrir starfsfólk. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.