Velferðarráð - 1221
- Kl. 14:00 - 17:15
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1221
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Róbert Freyr Jónsson
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirframkvæmdastjóri
- Kolbeinn Aðalsteinssonfundarritari
Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar - stefna og framkvæmdaáætlun 2014-2018
Málsnúmer 2015110069Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar kynnti framkvæmdaáætlun barnaverndarnefndar Eyjafjarðar.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.
Stuðningsfjölskyldur - greiðslur til stuðningsfjölskyldna
Málsnúmer 2012030081Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynnti þörf fyrir breytingu á greiðslum til stuðningsfjölskyldna. Lagt fram minnisblað Karólínu Gunnarsdóttur og Fanneyjar Jónsdóttur dagsett 14. desember 2015.
Velferðarráð samþykkir tillögu að breytingu á greiðslum til stuðningsfjölskyldna enda rúmast þær innan fjárhagsáætlunar 2016.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)
Málsnúmer 2012080060Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynntu stöðuna í NPA verkefninu.
Velferðarráð samþykkir að halda áfram með þá NPA samninga sem gerðir hafa verið, óski þjónustuþegar eftir því. Samþykkt að hækka vinnustund um 2,5% í kr. 3.090 enda rúmist það innan fjárhagsáætlunar 2016. Nýir samningar verða ekki gerðir á árinu 2016.
Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 20150800623ja ára áætlanir búsetudeildar og fjölskyldudeildar lagðar fram til kynningar. Guðrún Siguðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat undir þessum lið.
Fundaáætlun velferðarráðs
Málsnúmer 2015060008Fundaáætlun velferðarráðs janúar til júní 2016 lögð fram.
Velferðarstefna 2014-2018
Málsnúmer 2015010191Staða vinnu við gerð velferðarstefnu 2014-2018 kynnt og rædd. Anna Lilja Björnsdóttir verkefnisstjóri velferðarstefnu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.